Þorbjargarsjóður - Styrkir til náms - Ungt fólk með gigtarsjúkdóm

26. ágúst 2019

Stjórn Styrktar- og minningarsjóðs Þorbjargar Björnsdóttur hefur ákveðið að veita styrk úr sjóðnum í ár. Tilgangur sjóðsins er að styðja gigtarsjúklinga og þá einkum unga gigtarsjúklinga til náms. Styrkupphæð nemur allt að 500 þúsund krónum. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Gigtarfélags Íslands í síma 530 3600. Beiðni má senda á skrifstofa@gigt.is og þau verða send um hæl. Með hverri umsókn þarf að fylgja vottorð frá lækni er staðfestir gigtarsjúkdóm umsækjenda. Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2019. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu GÍ í síma 530 3600 og á gigt@gigt.is