Sumarlokun og Happdrætti

18. júlí 2019

Skrifstofa Gigtarfélags Íslands er lokuð vegna sumarleyfa frá og með 15. júlí 2019 og opnar aftur 12. ágúst. Eins er iðjuþjálfun lokuð á sama tíma. Sjúkraþjálfun félagsins verður opin hluta þessa tímabils. Beinn sími sjúkraþjálfunar er 530 3609. Ef lokað er kemur það fram á símsvara sjúkraþjálfunar.

Dregið hefur verið í sumarhappdrætti félagsins. Vinningaskrá er að finna undir „Happdrætti“ hér á síðunni. Flýtileiðin er hér til hægri, neðst af gráu hnöppunum og á stendur Happdrætti. Vinninga er hægt að vitja þá skrifstofa opnar aftur þann 12. ágúst.

Gigtarfélagið