Opið hús hjá Gigtarfélagi Íslands á kosningadag

25. október 2016

Nú í byrjun október varð Gigtarfélag Íslands 40 ára og Rannsóknarstofa í gigtsjúkdómum 20 ára. Í tilefni þess stendur Gigtarfélag Íslands fyrir opnu húsi þann 29. október milli klukkan 13:00 og 16:00 að Ármúla 5.
Formaður GÍ byrjar dagskrána á ávarpi og í kjölfarið munu gigtarlæknar flytja fyrirlestra, annars vegar um slitgigt og hins vegar um rannsóknarstofuna. Fjölbreytt starfsemi Gigtarfélagsins verður kynnt, ýmis konar vörukynningar verða í húsinu og Jóhanna Guðrún mun koma við og taka nokkur lög.
Að sjálfsögðu verður heitt á könnunni og afmælisterta í boði.
Við hvetjum alla áhugasama til að mæta og eiga góða stund með okkur.
Ítarlegri dagskrá má sjá með því að smella hér