Heilsumolar

3. febrúar 2023

SÍBS hefur framleitt örmyndböndin “Heilsumola” með góðum ráðum um hvað hægt er að gera til að bæta heilsu og líðan. Að taka ábyrgð á eigin heilsu hefst á því að vita hvað er heilsusamlegt.

Heilsumolar eru 18 örmyndbönd, en hvert myndband svarar mikilvægri spurningu varðandi svefn, streitu, mataræði eða hreyfingu. Öll myndböndin eru aðgengileg á vefnum heilsumolar.is

Í janúar var næringin á dagskrá og í febrúar verða gefin út myndbönd um hreyfingu. Myndbönd um svefn og streitu voru gefin út fyrir áramótin.
Heilsumolarnir eru einnig birtir á facebook-síðu Heilsumola og á skjám á opinberum stöðum.

Myndböndin eru unnin í samstarfi SÍBS við Embætti landlæknis, Reykjavíkurborg, Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar, Heilsuveru, ÍSÍ, Rauða krossinn og Betri svefn, með styrk frá Lýðheilsusjóði. Myndböndin verða fyrst aðgengileg á íslensku, síðan á ensku og pólsku.