Gigtarfélag Íslands óskar eftir iðjuþjálfa

Spennandi starf

26. júní 2024

Spennandi starf

Gigtarfélag Íslands óskar eftir iðjuþjálfa í 100% starf. Möguleiki er á að skipta starfinu upp í tvö 50 % störf. Gigtarfélag Íslands hefur undanfarið gengið í gegnum miklar breytingar. Fyrrum framkvæmdastjóri félagsins hefur látið af störfum og félagið hefur flutt í nýuppgert og hentugt húsnæði í Brekkuhúsum 1í Reykjavík. Sá sem ræður sig í starfið hefur tækifæri til að móta starfsemi iðjuþjálfunardeildar félagsins á nýjum stað. Félagið er að ganga í gegn um mikla breytingatíma og færa sig til nútímalegri meðferðarstarfsemi og því er um spennandi starf að ræða. Nýr framkvæmdastjóri verður ráðin á næstu mánuðum auk þess sem sjúkraþjálfurum verður fjölgað og kemur nýr iðjuþjálfari að því að móta starfsemi félagsins til framtíðar.

Tilgangur iðjuþjálfunar Gigtarfélagsins er að hjálpa fólki til að auka og viðhalda hreyfifærni og auka þannig lífsgæði skjólstæðinganna.

Starfið er fjölbreytt starf með fólki með gigt á öllum aldri. Unnið er samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar sem meðal annars býður upp á möguleika á meðferð á staðnum en einnig upp á ráðleggingar á heimili og fleira. Starfið er gefandi og fjölbreytt og krefst faglegra og sjálfstæðra vinnubragða og frumkvæðis.

Hæfnikröfur:

» Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
» Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
» Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
» Íslenskukunnátta

Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist formanni Gigtarfélags Íslands á netfangið dora@gigt.is

Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmálMeginmál