Gigtarfélag Íslands óskar eftir iðjuþjálfa

18. júlí 2022

Gigtarfélag Íslands óskar eftir iðjuþjálfa til starfa. Félagið leitar að jákvæðum og skipulögðum einstaklingi í 80 til 100% starf. Starfið er fjölbreytt og gefandi, krefst faglegra vinnubragða og sjálfstæðis í starfi. Viðkomandi mun taka þátt í uppbyggingu þjónustunnar þá félagið flytur í nýtt húsnæði. Kostur ef viðkomandi getur hafið störf í águst.

Starfssvið:

· Móttaka sjúklinga, mat á færni og þjálfunarþörf og gerð meðferðaráætlunar.

· Fræðsla um líffræði handar, grip o.fl. Kennd er liðvernd og æfingar er viðhalda eða auka      hreyfigetu og styrk.

· Ráðgjöf við val hjálpartækja og kennsla á þau. Aðstoðað við útvegun.

· Heimilis- og vinnustaðaathuganir.

· Nauðsynleg skýrslugerð um meðferð og aðra rekstrarlega þætti iðjuþjálfunar í samvinnu    viðstarfsmenn félagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi.

· Hæfni til frumkvæðis, sjálfstæðra vinnubragða og lausnamiðaðrar nálgunar.

· Hæfni í mannlegum samskiptum.

· Æskileg reynsla af störfum með fólki 50+

Laun:

Samkomulagsatriði. Viðmið gildandi kjarasamnings ríkisins og Iðjuþjálfafélags Íslands.

Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist skrifstofu Gigtarfélags Íslands að Ármúla 5, 108 Reykjavík, eða rafrænt á netfangið: emilthor@gigt.is fyrir 15. águst n.k. Nánari upplýsingar um starfið gefur Emil Thoroddsen framkvæmdarstjóri í síma 863 9922. Fyrirspurnir er hægt að senda á netfangið emilthor@gigt.is

Nánar má fræðast um starfsemi Gigtarfélagsins hér á síðunni