Gigtarfélag Íslands óskar eftir iðjuþjálfa
Gigtarfélag Íslands óskar eftir iðjuþjálfa til starfa.
Félagið leitar að jákvæðum, skipulögðum og einstaklingi í 80 til 100% starf. Starfið
er fjölbreytt og gefandi, krefst faglegra vinnubragða og sjálfstæðis í starfi. Viðkomandi mun taka þátt í uppbyggingu
þjónustunnar þá félagið flytur í nýtt húsnæði. Kostur ef viðkomandi getur hafið
störf í águst.
Starfssvið
· Móttaka sjúklinga, mat á færni og þjálfunarþörf og gerð meðferðaráætlunar.
· Fræðsla um líffræði handar, grip o.fl. Kennd er liðvernd og æfingar er viðhalda eða auka hreyfigetu og styrk.
· Ráðgjöf við val hjálpartækja og kennsla á þau. Aðstoðað við útvegun.
· Heimilis- og vinnustaðaathuganir.
· Nauðsynleg skýrslugerð um meðferð og aðra rekstrarlega þætti iðjuþjálfunar í samvinnu viðstarfsmenn félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi.
• Hæfni til frumkvæðis, sjálfstæðra vinnubragða og lausnamiðaðrar nálgunar.
· Hæfni í mannlegum samskiptum.
· Æskileg reynsla af störfum með fólki 50+
Laun:
Samkomulagsatriði. Viðmið gildandi kjarasamnings ríkisins og Iðjuþjálfafélags Íslands.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist skrifstofu Gigtarfélags Íslands að Ármúla 5, 108 Reykjavík, eða rafrænt á netfangið: emilthor@gigt.is fyrir 15. júní n.k. Nánari upplýsingar um starfið gefur Emil Thoroddsen framkvæmdarstjóri í síma 530 3600 eða 863 9922 og Jóhanna B. Bjarnadóttir iðjuþjálfi í síma 530 3603. Fyrirspurnir er hægt að senda á netfangið emilthor@gigt.is
Nánar má fræðast um starfsemi Gigtarfélagsins hér á www.gigt.is