Hver er munurinn á fjölvöðvagigt og fjölvöðvabólgu?

Spurning:

Hver er munurinn á fjölvöðvagigt (polymyalgia rheumatica) og polymyositis og hvaða nafn er notað á Íslensku yfir það síðarnefnda?

Batahorfur fyrir polymyositis - er einhver von með annarskonar meðhöndlun en með sterum og Methotrexate?

Bestu kveðjur.

Svar:

Fjölvöðvagigt er sjúkdómur eldra og miðaldra fólks. Algengustu einkenni eru verkir og stirðleiki á herðum, öxlum, mjöðmum og lærum, hiti og almennur slappleiki Máttleysi fylgir stundum þannig að fólk á erfitt með að ganga upp stiga eða rísa úr stól. Engin sérstök rannsókn er til sem greinir fjölvöðvagigt, helst hækkanir á blóðsökki. Talið er að fjölvöðvagigt læknist að sjálfu sér, en oft eru sterar notaðir.

Polymyositis öðru nafni fjölvöðvabólga lýsir sér sem bólgur í mörgum vöðvum. Getur haft áhrif á innri líffæri meðal annars lungu. Einnig geta fylgt húðútbrot. Til greiningar eru notaðar sérhæfðar blóðprufur og vefjasýni tekið úr vöðva. Batahorfur eru oftast góðar en sjúkdómurin getur haft alvarlegar afleiðingar í einstaka tilfellum.

Við meðferð eru notast við stera og Methotrexate en í einstaka tilfellum gæti önnur lyfja­meðferð komið til greina.

Kveðja, Gigtarlínan