0%
Loading ...

Stólaleikfimi – Nýtt

Stólaleikfimi – Nýtt

Af hverju skiptir aðlöguð hreyfing máli?

Leiðbeiningar EULAR, Evrópusamtaka gigtarfélaga og fagfólks, leggja áherslu á að regluleg hreyfing eigi að vera hluti af almennri meðferð fólks með gigt. Hreyfing getur meðal annars haft jákvæð áhrif á styrk, þol, hreyfigetu, verki, færni og almenna líðan.

EULAR leggur jafnframt áherslu á að hreyfing sé aðlöguð að heilsu, getu, áhuga og aðstæðum hvers og eins. Það er einmitt markmiðið með námskeiðum Gigtarfélagsins: að skapa örugga leið inn í hreyfingu þar sem tekið er tillit til gigtarinnar og dagsformsins.

Þú þarft því ekki að vera komin/n í gott form áður en þú byrjar. Námskeiðið er leið til að byrja – rólega, örugglega og í góðum félagsskap.

Stólaleikfimi

Stólaleikfimin hentar sérstaklega þeim sem eiga erfitt með að standa lengi, eru óöruggir á fótum eða þurfa að geta hvílt sig á meðan þeir hreyfa sig. Æfingarnar eru að mestu gerðar sitjandi eða með stuðningi frá stól. Tímarnir henta fólki á öllum aldri.

Unnið er meðal annars með:

  • liðleika og hreyfigetu
  • styrk og stöðugleika
  • jafnvægi og líkamsstöðu
  • mildar þolæfingar
  • örugga hreyfingu sem hægt er að laga að dagsforminu

Þótt æft sé á stól getur stólaleikfimi verið mjög góð og áhrifarík þjálfun. Hún getur sérstaklega hentað þeim sem hafa áður átt erfitt með að finna hreyfingu við hæfi eða treysta sér ekki í hefðbundna leikfimitíma.