1. Um skilmálana
Gigtarfélag Íslands leggur ríka áherslu á öryggi, trúnað og ábyrga meðferð persónuupplýsinga í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og evrópsku persónuverndarreglugerðina (GDPR). Þessir skilmálar gilda um alla meðhöndlun persónuupplýsinga sem á sér stað í tengslum við starfsemi félagsins, þar með talið félagsaðild, námskeið, kaup á minningarkortum og notkun á vef félagsins.
2. Hvaða upplýsingar söfnum við?
Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru fyrir rekstur og þjónustu félagsins.
Þetta getur falið í sér:
– Nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang
– Kennitölu (ef við á, t.d. vegna félagsaðildar)
– Upplýsingar um greiðslu (t.d. kaup á minningarkorti, námskeiðsgjöld, félagsgjöld)
– Skráningarupplýsingar í tengslum við námskeið
– Tölvupóstsamskipti og aðrar athugasemdir sem þú sendir okkur
ATH.: Þegar félagsmenn óska eftir aðgangi að lokuðum hópum (t.d. á samfélagsmiðlum), er spurt hvort viðkomandi sé með gigtarsjúkdóm. Slíkar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að staðfesta réttmæti aðgangs og eru hvorki geymdar né skráðar í kerfum eða gagnagrunnum félagsins.
3. Tilgangur með vinnslu
Við vinnum persónuupplýsingar í eftirfarandi tilgangi:
– Til að stofna og viðhalda félagsaðild
– Til að vinna úr skráningum í námskeið
– Til að afgreiða kaup á minningarkortum
– Til að svara fyrirspurnum og veita þjónustu
– Til að uppfylla lagalegar skyldur (svo sem bókhald)
– Til að bæta upplifun og virkni á vefnum
4. Öryggi gagna
Við beitum tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að tryggja öryggi persónuupplýsinga og koma í veg fyrir óheimilan aðgang, breytingar eða glötun gagna.
5. Deiling með þriðja aðila
Við deilum persónuupplýsingum eingöngu þegar nauðsyn krefur, t.d.:
– Með þjónustuaðilum sem vinna að greiðslulausnum, vefhýsingu eða kerfisstjórnun
– Með opinberum aðilum þegar lagaskylda krefst
– Aldrei með óviðkomandi þriðju aðilum án samþykkis
Allir samstarfsaðilar og verktakar sem vinna með persónuupplýsingar gera það á grundvelli gagnavinnslusamninga.
6. Kökustefna (Cookies)
Vefsíða Gigtarfélags Íslands notar kökur til að bæta notendaupplifun.
Tegundir af kökum sem við notum:
– Nauðsynlegar kökur: Til að tryggja eðlilega virkni vefsins
– Tölfræðikökur: Til að safna nafnlausum upplýsingum um notkun vefsins (t.d. með Google Analytics)
– Virknikökur: Til að muna val notanda, t.d. tungumálastillingar
Samþykki og stjórnun:
Við notum kökuborða þar sem notendur geta samþykkt eða hafnað notkun valfrjálsra kaka. Þú getur einnig breytt stillingum í vafranum þínum til að stjórna eða eyða kökum hvenær sem er.
7. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
– Fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við geymum um þig
– Krefjast leiðréttingar á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum
– Krefjast eyðingar gagna í ákveðnum tilvikum
– Andmæla vinnslu eða takmarka hana
– Afturkalla samþykki (ef vinnsla byggist á samþykki)
– Leggja fram kvörtun til Persónuverndar
Beiðnir má senda á: gigt@gigt.is
8. Geymslutími gagna
– Persónuupplýsingar eru ekki geymdar lengur en nauðsyn krefur.
– Reikningsupplýsingar eru varðveittar í að lágmarki 7 ár samkvæmt lögum um bókhald.
– Svör við spurningum um gigtarsjúkdóma eru ekki skráð eða vistuð – einungis nýtt til að veita aðgang að lokuðum hópum og strax eytt að því loknu.
9. Samskipti og ábyrgðaraðili
Fyrirspurnir um persónuvernd, gögn eða kvartanir má senda á:
Gigtarfélag Íslands
Netfang: gigt@gigt.is
Sími: 530 3600
Heimilisfang: Brekkuhús 1, 112 Reykjavík.
10. Breytingar á skilmálum
Gigtarfélag Íslands áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er. Breytingar taka gildi við birtingu á vef félagsins.
Reykjavík 7. apríl 2025