0%
Loading ...

Meðferðir

Meðferðir

Viðeigandi meðferð og þjálfun bætir lífsgæði

Hægt er að panta tíma í sjúkraþjálfun í gegnum hnappinn til hægri eða í síma 530 3600

Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfun minnkar verki og eykur liðleika og styrk. Þannig hefur meðferð jákvæð áhrif á heilsu og lífsgæði fólks með gigt.

Hún felur í sér styrkjandi og liðkandi æfingar, nudd og kennslu í réttri líkamsbeitingu. Markmiðið er að endurheimta færni og koma í veg fyrir frekari vanda.

Skila þarf beiðni frá lækni fyrir sjúkraþjálfun.

Sjúkraþjálfun er niðurgreidd af Sjúkratryggingum Íslands

Hægt er að panta tíma í iðjuþjálfun í gegnum hnappinn til hægri eða í síma 530-3600

Iðjuþjálfun

Iðjuþjálfun miðar að því að bæta færni og lífsgæði fólks sem glímir við verki, eða veikindi sem hafa áhrif á getu þeirra til að takast á við daglegar athafnir. Iðjuþjálfar vinna með skjólstæðingum til að finna leiðir til að auka sjálfstæði, draga úr vanlíðan og gera athafnir lífsins mögulegar.

Meðferðin felur í sér æfingar, fræðslu og ráðgjöf um hjálpartæki eða aðlögun á umhverfi til að auðvelda þátttöku í daglegu lífi.

Skila þarf sérstakri beiðni frá lækni fyrir iðjuþjálfun.

Iðjuþjálfun er niðurgreidd af Sjúkratryggingum Íslands

Næstu námskeið hefjast:
7. og 8. apríl

Þriðjudaga kl. 12
Miðvikudaga kl. 12

Fótafimi - bandvefslosun

Fótafimi – bandvefslosun eru nýir tímar hjá Gigtarfélaginu. Í þessum tímum verða  rólegar hreyfingar, teygjur og bandvefslosun fyrir fætur, iljar, tær og fleiri staði líkamans. Námskeiðið hentar þeim sem vilja draga úr verkjum og stífleika.

Tímarnir eru undir stjórn Jónu Guðbjargar íþróttafræðings.

Námskeið stendur yfir í sex vikur.

Hver tími er 50 mín.

 
 

Verð: 19.900kr

Verð fyrir félagsmenn: 15.900kr

 

Næstu námskeið hefjast:
7.  og 8. apríl

Þriðjudagar: 11:00 og 12:30
Miðvikudagar: 11:00 og 12:30

Handafimi og vax

Handaæfingar hafa mjög góð áhrif á virkni handa og fingra með því að viðhalda og bæta liðleika og styrk.
Tíminn hefst á vaxmeðferð á höndum þar sem við fáum góða slökun meðan hendur og fingur hitna og mýkjast. Svo eru gerðar æfingar fyrir hendur og fingur.

Tímarnir eru undir stjórn Guðbjargar Guðmundsdóttur iðjuþjálfa.

Með beiðni frá lækni telst námskeiðið sem hópþjálfun hjá iðjuþjálfa og nýtur því greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.

Námskeið hefjast 7. og 8. apríl til 5. og 6. maí.                                                                                                        Hægt er að velja um fjórar tímasetningar.

Verð án beiðni: 24.400kr.

Verð fyrir félagsmenn: 14.600kr.

Með iðþjuþjálfunarbeiðni frá lækni eru tímarnir niðurgreiddir af Sjúkratryggingum Íslands.

Þriðjudagar og fimmtudagar
Grensás kl. 15.15
Mánudagar og miðvikudagar
Hátún kl. 16.30

Vatnsleikfimi

Hreyfing í vatni er mjög góð fyrir fólk með stoðkerfisvanda. Í vatni verða hreyfingar léttari og minna álag á liði, því hentar vatnsleikfimi mjög vel fólki með gigtarsjúkdóma.
 
Kennarar með viðeigandi menntun og reynslu sjá um tímana sem fara fram í  Grensáslaug og í laug Sjálfsbjargarfélags Íslands í Hátúni. 
Grensás tímar eru aðeins fyrir konur.
 
Námskeiðið er 12 skipti frá 25 ágúst – 2. okt.

VERÐ FYRIR FÉLAGSMENN:

36.600 kr.

Utan félags:

47.000 kr.

Fim. 26. mar., þri. 31. mar.,
fim. 9. apr., mán. 20. apr.,
fim. 30. apr. og þri. 5. maí

Allir tímarnir eru klukkan: 11-12

Langvinnir verkir

Komdu með í sex vikna hópnámskeið með fólki sem þekkir langvinna verki á eigin skinni. Námskeiðið er leitt af Svövu Arnardóttur iðjuþjálfa og byggist upp á umræðum, fræðslu og ýmsu úr verkfærakistunni.

Verð námskeiðs án beiðni fyrir iðjuþjálfun eru 45.000kr.

Með beiðni frá lækni telst námskeiðið sem hópþjálfun hjá iðjuþjálfa og nýtur því greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.

VERÐ FYRIR FÉLAGSMENN:

45.000 k.

 

Fimmtudaga frá kl. 11-12
15., 22., 29. janúar
5., 12., 19. febrúar 2026

Lífssagan mín

Komdu med i sex vikna hópnámskeid ætlað fólki sem vill rýna i sjálft sig og samhengi hlutanna. Hvernig er tilveran okkar og hvernig getum við lifað þýðingarríku lífi? Námskeiðið er leitt af Svövu Arnardóttur iðjuþjálfa og byggist upp á umædðum, fræðslu og ýmsu úr verkfærakistunni.

Verð námskeiðs án beiðni fyrir iðjuþjálfun:

45.000 kr.

Með beiðni frá lækni telst námskeiðið sem hópþjálfun hjá iðjuþjálfa og nýtur því greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands.

Námskeiðið er haldið að Brekkhúsum 1, húsnæði Gigtarfélagsins.

VERÐ FYRIR FÉLAGSMENN:

45.000 kr.

Þriðjudgar: 17.30
Miðvikudagar: 17.30

Gönguhópur vorönn

tvisvar í viku

Ganga er góð alhliða líkamsþjálfun og er mikilvægt er að viðhalda getu til göngu eins lengi og mögulegt er.

Gönguhópurinn gengur tvisvar í viku í Egilshöll á veturnar en úti í góðu veðri á sumrin. Vanir íþróttafræðingar styðja við hópinn með leiðsögn, teygjuæfingum og ráðgjöf. Frítt fyrir félagsmenn.

VERÐ FYRIR FÉLAGSMENN:

3.000 kr. önnnin

Þriðjudgar: 17.30
Miðvikudagar: 17.30

Stólaleikfimi

tvisvar í viku

Námskeið fyrir fólk með gigt sem vill bæta hreyfigetu og styrk á öruggan og skemmtilegan hátt. Lögð er áhersla á mjúkar, liðkandi hreyfingar sem draga úr verkjum og stífleika. 

VERÐ FYRIR FÉLAGSMENN:

4.900 kr.

Þriðjudgar: 17.30
Miðvikudagar: 17.30

Liðleiki og styrkur

tvisvar í viku

Námskeið fyrir fólk með gigt sem vilja bæta hreyfigetu, styrk og líðan. Áhersla á mjúkar, liðkandi hreyfingar og teygjur sem draga úr verkjum og stífleika.

VERÐ FYRIR FÉLAGSMENN:

Almennt verð 4.900 kr.

Í SUMAR

Jógatímar

Tilveran heilsusetur býður félögum í Gigtarfélagi Íslands sérkjör á jóga. Félagar njóta 20% afsláttar af öllum jógatímum með skráningu. Jóga getur verið frábær leið til að bæta hreyfigetu, draga úr streitu og styrkja líkamann á mildan hátt. Tilveran leggur áherslu á vellíðan og aðlagaðar æfingar fyrir alla, þar á meðal gigtarsjúklinga.