
Af hverju skiptir aðlöguð hreyfing máli?
Leiðbeiningar EULAR, Evrópusamtaka gigtarfélaga og fagfólks, leggja áherslu á að regluleg hreyfing eigi að vera hluti af almennri meðferð fólks með gigt. Hreyfing getur meðal annars haft jákvæð áhrif á styrk, þol, hreyfigetu, verki, færni og almenna líðan.
EULAR leggur jafnframt áherslu á að hreyfing sé aðlöguð að heilsu, getu, áhuga og aðstæðum hvers og eins. Það er einmitt markmiðið með námskeiðum Gigtarfélagsins: að skapa örugga leið inn í hreyfingu þar sem tekið er tillit til gigtarinnar og dagsformsins.
Þú þarft því ekki að vera komin/n í gott form áður en þú byrjar. Námskeiðið er leið til að byrja – rólega, örugglega og í góðum félagsskap.
Stólaleikfimi
Stólaleikfimin hentar sérstaklega þeim sem eiga erfitt með að standa lengi, eru óöruggir á fótum eða þurfa að geta hvílt sig á meðan þeir hreyfa sig. Æfingarnar eru að mestu gerðar sitjandi eða með stuðningi frá stól. Tímarnir henta fólki á öllum aldri.
Unnið er meðal annars með:
- liðleika og hreyfigetu
- styrk og stöðugleika
- jafnvægi og líkamsstöðu
- mildar þolæfingar
- örugga hreyfingu sem hægt er að laga að dagsforminu
Þótt æft sé á stól getur stólaleikfimi verið mjög góð og áhrifarík þjálfun. Hún getur sérstaklega hentað þeim sem hafa áður átt erfitt með að finna hreyfingu við hæfi eða treysta sér ekki í hefðbundna leikfimitíma.



