0%
Loading ...

Dansleikfimi – enn laus pláss

Dansleikfimi – enn laus pláss

Enn eru laus pláss og okkur langar sérstaklega að hvetja ykkur til að kynna ykkur þessa skemmtilegu og fjölbreyttu leið til hreyfingar.

Dansleikfimin sameinar léttar og aðlagaðar hreyfingar, tónlist og gleði. Markmiðið er að efla þol, jafnvægi, samhæfingu og liðleika á öruggan hátt, en ekki síður að bæta líðan og eiga ánægjulega stund með öðrum.

Engin reynsla af dansi er nauðsynleg og hver og einn tekur þátt út frá eigin getu og dagsformi. Tímarnir eru undir stjórn Ingibjargar Viktoríu Hafsteinsdóttur sjúkraþjálfara, sem getur aðlagað æfingarnar að ólíkum þörfum þátttakenda.

Rannsóknir benda til þess að tónlist, dans og jafnvel hlátur geti haft jákvæð áhrif á verkjaupplifun. Þessir þættir lækna ekki undirliggjandi sjúkdóm, en geta dregið úr streitu, beint athyglinni frá verkjum, aukið vellíðan og gert hreyfingu ánægjulegri. Dans við tónlist sameinar því marga þætti sem geta stutt við betri líðan fólks með langvinna verki: örugga hreyfingu, tónlist, gleði og félagslega samveru.

Þetta samræmist einnig leiðbeiningum EULAR, Evrópusamtaka gigtarfélaga, þar sem regluleg og einstaklingsmiðuð hreyfing er talin mikilvægur þáttur í meðferð gigtar- og stoðkerfissjúkdóma. Mikilvægt er að velja hreyfingu sem hentar getu og áhuga hvers og eins – og sem fólk hefur ánægju af og treystir sér til að stunda reglulega.

Dansleikfimi getur því verið góður kostur fyrir þau sem finnst hefðbundin líkamsrækt erfið, einhæf eða óaðgengileg. Hér er áherslan ekki á að kunna sporin eða framkvæma allt fullkomlega, heldur að hreyfa sig á eigin forsendum, njóta tónlistarinnar, samverunnar og eiga skemmtilega stund.