Fjögurra vikna hópnámskeið fyrir fólk sem vill hafa orku til að sinna bæði skylduverkum og því sem gefur lífinu lit. Námskeiðið er leitt af Svövu Arnardóttur iðjuþjálfa og innifelur umræður, fræðslu og ýmislegt úr verkfærakistunni.
Meðal umræðuefna er: Orka í samhengi við heilsu, verki og daglegt líf. Orku- og virknimynstur. Skeiðakenningin. Mismunandi þreyta. Aðferðir til að spara orku. Tengsl svefns, hvíldar, verkja og orku. Jafnvægi og streita og svo margt fleira.
Þriðjudaga kl. 14:30-15:30 – 28. apríl, 5.,19. og 26. maí
Ef þú ert með beiðni frá lækni um iðjuþjálfun er kostnaður í samræmi við gjaldskrá SÍ. Án beiðni kostar námskeiðið 30.000kr



