Félagið heitir Gigtarfélag Íslands fta. Heimili þess og aðalstarfsstöð er í Reykjavík.
Gigtarfélag Íslands (GÍ) starfar samkvæmt lögum nr. 110/2021 um félög til almannaheilla.
Markmið og tilgangur GÍ er að berjast gegn gigtarsjúkdómum og áhrifum þeirra og vinna að fullnægjandi framboði á nauðsynlegri þjónustu við gigtsjúka. Félagið stefnir m.a. að því að ná þessu markmiði með því að:
Gigtarfélag Íslands var stofnað 9. október 1976 með óendurkræfum framlögum frá stofnfélögum og frjálsum framlögum frá almenningi. Enginn nýtur sérréttinda hjá félaginu, hvorki stofnendur né aðrir.
Félagar geta allir þeir einstaklingar verið er þess óska og áhuga hafa á að styðja tilgang félagsins.
Árgjald skal ákveðið á aðalfundi. Skal fjárhæð árgjaldsins ákveðin fyrirfram fyrir næsta starfsár og koma til innheimtu í byrjun næsta árs. Stjórninni er heimilt að fella niður árgjald örorku- og ellilífeyrisþega.
Stjórninni er heimilt að afla stuðnings frá fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum eftir reglum sem hún setur. Halda skal skrá yfir styrktarmeðlimi. Heimilt er að fella félagsmenn úr félagaskrá hafi þeir ekki greitt árgjald síðustu tveggja ára og ekki sótt um niðurfellingu. Ráðstöfun fjármuna skal vera í samræmi við markmið og tilgang félagsins.
Aðalfundur fer með æðsta vald félagsins. Aðalfund skal halda eigi síðar en í júnímánuði ár hvert og skal til hans boðað formlega með tveggja vikna fyrirvara hið skemmsta, ásamt tilgreindri dagskrá.
Afl atkvæða ræður úrslitum mála á aðalfundi nema annað sé ákveðið í samþykktum þessum. Sérhver félagi á skrá félagsins, sem greitt hafði árgjald síðasta starfsárs fyrir 2 næstliðin áramót eða fengið niðurfellingu stjórnar skv. 5. gr., hefur eitt atkvæði á félagsfundi.
Samþykkt á aðalfundi félagsins 14. maí 2024.