Sumargangan verður laugardaginn 14. júní kl 13:00. Við ætlum að hittast fyrir utan Árbæjarlaugina og síðan mun Styrmir sjúkraþjálfari GÍ leiða hópinn um efri hluta Elliðaárdals.
Þetta verður róleg ganga í 1,5 tíma og endar gangan aftur að Árbæjarlaug.
Sjáumst hress og kát fyrir utan Árbæjarlaug.
Viðburðurinn er einnig auglýstur inná facebook síðu okkar.
https://www.facebook.com/GigtarfelagIslands
Staðsetning Árbæjarlaug , Fylkisvegur 21, 110 Reykjavík



