0%
Loading ...

Stundatafla vetrarstarfs Gigtarfélagsins

Stundatafla vetrarstarfs Gigtarfélagsins

 MánudagurÞriðjudagurMiðvikudagur
Vika 1Liðagigtarhópur Kl: 13:00-14:30Spjallhópur Kl: 13:00-14:30 
Vika 2 Þvagsýrugigt Kl: 13:00-14:30Vefjagigtarhópur Kl: 13:00-14:30
Vika 3 Foreldrar með gigt Kl: 13:00-14:30Slitgigtarhópur Kl: 13-15:00
Vika 4 Leshringur  Handavinnuhópur Kl: 13:00-14:30

Liðagigtarhópur: Fundir fyrir fólk með liðagigt eða skylda sjúkdóma

Spjallhópur: Opnir fundir fyrir alla félaga gigtarfélagsins sem vilja hitta aðra og spjalla yfir kaffibolla.

Þvagsýrugigt/kristallagigt: Fundir fyrir fólk með kristallagigt eða þvagsýrugigt, en allir sem eiga við verkjavandamál eru velkomnir.

Foreldrar með gigt: Foreldrar með gigt upplifa sig oft einangraða og þurfa oft að finna aðrar leiðir til að gera hlutina en aðrir foreldrar. Við ætlum að bjóða upp á fundi í vetur þar sem foreldrar með git geta hitt aðra foreldra til að ræða málin við aðra í sömu stöðu bæði til að spjalla og líka til að læra hvert af öðru. Börnin eru velkomin með.

Leshringur: Hópurinn hittist einu sinni í mánuði og ræðir um fyrirfram ákveðnar bækur. Auglýst er fyrirfram hvaða bók er tekin fyrir á  hverjum fundi.

Handavinnuhópur:  Það er fátt eins notalegt og að sitja í góðum hópi með handavinnuna sína og ræða málin. Í vetur verður starfræktur handavinnuhópur hjá Gigtarfélaginu. Á staðnum verða reyndar handavinnukonur sem hafa reynslu af því að leita nýrra leiða til að vinna handavinnu til að komast hjá verkjum í höndum og geta leiðbeint um vinnuaðferðir og vinnustöðu. Allir eru velkomnir með handavinnuna sína. Það er einnig velkomið að koma bara til að spjalla og fá sér kaffibolla og með því.

Vefjagigtarhópur: Hópur fyrir fólk með vefjagigt eða önnur verkjavandamál.

Slitgigtarhópur; Allir velkomnir sem eru með slitgigt eða verki í liðum.

Gott er að fólk láti vita að það ætli að koma á fundina, annað hvort á Facebook hópum hvers hóps eða með pósti til skrifstofu á gigt@gigt.is.

Foreldrahópur gigtveikra barna og Norðurlandsdeild er með fundi á Teams

Facebook