Aðalfundur Gigtarfélags Íslands var haldinn þann 14. maí síðastliðinn.
Farið var yfir ársreikninga félagsins sem komu mjög vel út. Vegna breytinga á lögum sem gerð var í fyrra var fækkað í stjórn í ár um tvo. Þeir sem fengu endurkosningu til tveggja ára voru Jóhann Guðvarðarson, Katrín Þórarinsdóttir og Anna Margrét Bjarnadóttir. Vera Dögg Antonsdóttir var kosin í aðalstjórn í eitt ár og Jóna Guðbjörg Árnadóttir og Sigrún Sigfúsdóttir voru kosnar sem varamenn í eitt ár.
Dóra Ingvadóttir formaður til 14 ára ákvað að bjóða sig ekki fram áfram og var Hrönn Stefánsdóttir kosin í hennar stað. Við þökkum Dóru kærlega fyrir störf hennar fyrir félagið og óskum henni velfarnaðar í öllum þeim verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur.
Katrín Þórarinsdóttir endaði svo aðalfundinn með fyrirlestri um Iktsýki/Liðagigt og var mikil ánægja með fyrirlesturinn.
Hrönn Stefánsdóttir hefur verið formaður Lupus- og sjögrenshóps Gigtarfélagsins frá árinu 2012 og í stjórn Gigtarfélagsins frá árinu 2013. Hrönn tekur virkan þátt í hagsmunabaráttu fólks með gigt í gegnum störf fyrir ÖBÍ hagsmunasamtök og hefur verið formaður Atvinnu- og menntamálahóps Öryrkjabandalags Íslands frá 2017 og situr í stjórn ÖBÍ. Hún er með BA-próf í uppeldisfræði og sálfræði, auk kennaraprófs (B.Ed.) frá Kennaraháskóla Íslands. Lengst af starfaði hún sem grunnskólakennari, í um tuttugu ár, en á síðari árum hefur áhugi hennar beinst æ meira að réttindum, velferð og lífsgæðum fólks með langvinna sjúkdóma.
Félagið er búið að ná að koma sér vel fyrir á nýjum stað í Brekkuhúsum1 í Reykjavík og blómstar jafningjastuðningstarfið og félagið dafnar og vex stöðugt. Það er mikilvægt á tímum breytinga á almannatryggingakerfinu og læknaskorts að hafa sterkt félag sem getur unnið vel fyrir fólk með gigt og því er vöxtur félagsins og sterkur hópur sjálfboðaliða sem vinna fyrir félagið á margvíslegan hátt mikilvægur. Hægt er að styðja félagið með því að gerast félagi, fara inn á vefsíðuna og skrá sig í jafningjastuðningshóp, aðstoða á viðburðum, kaupa sumarhappdrættismiða félagsins eða hlaupa fyrir félagið í Reykjavíkurmaraþoninu í sumar.



