Gigtarfélag Íslands var með kynningu á félaginu í Alvotech í vikunni. Hrönn Stefánsdóttir formaður Gigtarfélagsins og Katrín Þórarinsdóttir yfirlæknir á Gigtardeildinni voru með fyrirlestra fyrir starfsmenn Alvotech. Stefán Magnússon framkvæmdastjóri Gigtarfélagsins seldi svo happdrættismiða eins og vindurinn ![]()
Alvotech ætlar að hjálpa okkur að auka sýnileika Gigtarfélagsins svo að allir sem eru með Gigt á Íslandi viti af félaginu. Þetta samstarf við Alvotech hefur farið virkilega vel af stað og eru spennandi tímar framundan.







