Í tilefni af 50 ára afmæli Gigtarfélagsins í ár þá bjóðum við upp á dansnámskeið að kostnaðarlausu.
Námskeiðið verður á miðvikudögum kl. 14:00-14:40.
22. apríl til 27. maí.
Námskeiðið er fyrir alla sem finnst gaman að hreyfa sig í takt við tónlist. Dönsum létt spor við fjölbreytt og skemmtileg lög. Markmiðið er að bæta samhæfingu, jafnvægi, þol og auka gleði. Engin krafa er um fyrri dansreynslu.
Skapað er gott rými fyrir iðkendur til að taka þátt á sínum forsendum þar sem hvatt er til þess að hlusta á líkamann, laga hreyfingar að eigin getu og hvíla eftir þörfum.
Takmarkað pláss er á námskeiðið og því er nauðsynlegt að skrá sig.
Ef þú vilt dansa með okkur þá endilega skráðu þig hér: https://www.gigt.is/product/dans/
Ingibjörg Viktoría danskennari tekur vel á móti ykkur.




