Gigtarfélagið býður upp á dans.
Námskeiðið er fyrir alla sem finnst gaman að hreyfa sig í takt við tónlist. Dönsum létt spor við fjölbreytt og skemmtileg lög. Markmiðið er að bæta samhæfingu, jafnvægi, þol og auka gleði. Engin krafa er um fyrri dansreynslu.
Skapað er gott rými fyrir iðkendur til að taka þátt á sínum forsendum þar sem hvatt er til þess að hlusta á líkamann, laga hreyfingar að eigin getu og hvíla eftir þörfum.
Hver tími er 40 mínútur.
Takmarkað pláss er á námskeiðið og því er nauðsynlegt að skrá sig.
Danskennari er Ingibjörg Viktoría
10 sæti laus