0%
Loading ...

KR með styrktarleik

KR með styrktarleik

Körfuknattleiksdeild KR lætur gott af sér leiða með styrktarleik til stuðnings Gigtarfélags Íslands. Leikurinn fer fram næstkomandi sunnudag, 22. mars, þegar að KR-stúlkur taka á móti Njarðvík í Bónusdeild kvenna.

Gigtarfélag Íslands vinnur ötult starf við að bæta lífsgæði gigtarsjúklinga, stuðla að fræðslu og styðja við félagsfólk og aðstandendur. Gigtarsjúkdómar geta hrjáð fólk á öllum aldri, ekki einungis eldra fólk, en 75% gigtarsjúklinga eru konur.

Kvennalið KR leggur málefninu lið til að efla umræðuna og safna styrktarfé sem rennur beint til Gigtarfélagsins.

Sérstakir góðgerðabolir verða til sölu í takmörkuðu upplagi og því gefst stuðningsfólki og öðrum velunnurum tækifæri til að tryggja sér einstakan KR bol og um leið styrkja gott málefni. Allur ágóði sölunnar og miðasölu á leikinn mun renna til Gigtarfélags Íslands.

Nánari dagskrá tilkynnt á næstu dögum. Sjáumst á sunnudaginn á Meistaravöllum. Gigtarfélag ÍslandsAlvotech