Gigtarfélagið og Casa Heddy, heilsuhótel á Lanzarote, bjóða upp á tilboðsdaga fyrir félagsmenn Gigtarfélagsins dagana 1. til 15 júlí 2026. Stefán Magnússon framkvæmdastjóri Gigtarfélagsins tekur á móti ykkur á Lanzarote og verður til staðar á meðan ferðinni stendur.
Tilboð felur í sér:
Íslenska fararstjórn.
Gisting í tvær vikur.
Hálft fæði (morgunverður og kvöldverður).
Persónulegt mat á heilsu.
Daglegar morgunæfingar.
Dagleg virkniþjálfun með sjúkraþjálfara.
Vatnsleikfimi í upphitaðri sundlaug með sjúkraþjálfara á hverjum degi.
Einstaklingsmeðferð hjá sjúkraþjálfara tvisvar sinnum í viku.
Gönguferðir, kvöldskemmtanir og margt fleira.
Vinsamlegast notið beina tengilinn af vefsíðu Casa Heddy: https://casasheddy.com/
Einnig er hægt að hafa samband við Casa Heddy hótelið í síma +34 928 510 016 eða sent tölvupóst á sales@casasheddy.com.
Ef þig vantar meiri upplýsingar þá sendið póst á stefan@gigt.is eða hringið í síma 530-3600 og talið við Stefán framkvæmdastjóra.
ATH: það þurfa 10 manns að bóka sig til að fá íslenska fararstjórn í ferðina.


