0%
Loading ...

Sjúkraþjálfun

Sjúkraþjálfun Gigtarfélagsins

Sjúkraþjálfun á vegum Gigtarfélags Íslands er mikilvægur þáttur í því að styðja fólk með gigt til að viðhalda hreyfigetu, minnka verki og bæta lífsgæði. Sjúkraþjálfun félagsins er í húsnæði Gigtarfélagsins í Brekkuhúsum 1, 112 Reykjavík.

Hvað felst í sjúkraþjálfun fyrir gigtarsjúklinga?

  • Æfingaprógrömm sem eru sniðin að gigtarsjúkdómum, s.s. liðagigt, slitgigt, hryggikt og fleiri.
  • Styrktar- og liðkandi æfingar til að viðhalda hreyfanleika og vöðvastyrk.
  • Verkjameðferð, t.d. með teygjum, slökun eða léttum æfingum.
  • Sérhæfð meðferð sjúkraþjálfara
  • Fræðsla um líkamsbeitingu og aðferðir til að minnka álag á liði.
  • Sérhæfð hópnámskeið, t.d. vatnsleikfimi eða létt þolþjálfun.

Skráning og upplýsingar

  • Sími skrifstofu: 530-3600
  • Netfang: gigt@gigt.is
  • Vefur: www.gigt.is

Hverjir geta tekið þátt?

  • Til að komast að hjá sjúkraþjálfara þarf að fá beiðni frá lækni. Þjálfunin er niðurgreidd af Sjúkratryggingum Íslands.