Fréttir og Tilkynningar

Vatnsleikfimi í Hátúni - 22. apríl 2024

Stefnt er að opnun sundlaugarinnar í Hátúni 12 (Sjálfsbjargarhúsinu) í byrjun maí og verður Gigtarfélagið með vatnsleikfimi þar síðdegis á mánudögum og miðvikudögum.
Ætlunin er að vera með tvo hópa, þann fyrri klukkan 16:15 og þann síðari klukkan 17:00.
Setjum hér inn upplýsingar um dagsetningar námskeiðs og þátttökugjald þegar það liggur fyrir. Nánari upplýsingar um leikfimina má sjá hér  


Skráning í vatnsleikfimina er á skrifstofu Gigtarfélagsins, í síma 530 3600 eða með skeyti á netfangið gigt@gigt.is
Vatnsleikfimin er opin fyrir alla.

Lesa meira

Vatnsleikfimi í apríl og maí - 2. apríl 2024

Vatnsleikfimi hefst aftur 4. apríl í innilaug á Grensás. Hópurinn verður á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 15:15. 

Sjá nánar hér:  Upplýsingar og verð

Lesa meira

Skrifstofa GÍ lokuð fram yfir páska - 21. mars 2024

Skrifstofa Gigtarfélagsins verður lokuð frá föstudeginum 22. mars og fram yfir páska. Opnar aftur þriðjudaginn 2. apríl. Erindi til skrifstofu má senda á netfangið gigt@gigt.is
Sjúkraþjálfarar verða með viðveru á virkum dögum til páska og má senda skilaboð á síma þeirra.
Antonio, sími 663 0562.
Styrmir, sími 690 0407.

Lesa meira

Fréttasafn