Hópþjálfun í júní.
Boðið verðu upp á einn hóp í vatnsleikfimi á mánudögum og miðvikudögum kl. 15:05 til 15:45 í júní.
Verð fyrir félagsmenn er 12.952,- kr.
Einnig er í boði einn tími í Stott Pilates á þriðjudögum og fimmtudögum í júní. Tíminn er kl. 12:30 til 13:30.
Verð fyrir félagsmenn 11.430,- kr. Ath: Takmarkaður fjöldi er í báða hópanna.
Skráning á skrifstofu Gigtarfélagsins í síma 530 3600.
Hlé verður svo gert á hópþjálfun í júlí og ágúst. Í athugun er að hefja Pilates fyrr, verður auglýst síðar.