Gigtarfélagið um jól og áramót

21. desember 2018

Gigtarfélag Íslands óskar öllum Gleðilegra jóla, góðs og farsæls komandi árs. Þökkum öllum fyrir velvild og stuðning á árinu sem er að líða.

Skrifstofa félagsins er lokuð frá og með 21. desember og opnar aftur mánudaginn 7. janúar. Iðjuþjálfun félagsins lokuð milli jóla og nýárs og opnar 2. janúar.  Varðandi sjúkraþjálfun er best að hafa beint samband við sjúkraþjálfara.

Hópþjálfun félagsins hefst 7. janúar. Stundatafla verður birt 2. janúar.

Dregið var í hausthappdrætti félagsins 11. desember. Vinningsnúmer eru birt hér á síðunni undir hnappinum „Happdrætti“.