Styrktar- og minningarsjóður Þorbjargar Björnsdóttur veitir námsstyrki til ungs fólks með gigtarsjúkdóma. Tilgangur sjóðsins er að styðja við nám og menntun þessa hóps og er hann rekinn í samstarfi við Gigtarfélag Íslands. Þorbjörgu var mjög umhugað um að efla þyrfti menntun ungs fólks með gigt til að auka möguleika þeirra til þátttöku á vinnumarkaði og þar með auka lífsgæði þeirra þrátt fyrir baráttuna við sjúkdóm sinn, en dóttir hennar veiktist ung af gigt. Stofnfé sjóðsins fékkst með söfnunarfé sem vinkonur Þorbjargar söfnuðu meðal annars með því að selja kökur og handavinnu á bösurum.
Reynt er að greiða styrki úr sjóðnum eins oft og hægt er, án þess að skerða höfuðstól hans.
Hverjir geta sótt um?
Sjóðurinn er ætlaður einstaklingum með gigtarsjúkdóma, sérstaklega ungu fólki í námi. Umsækjendur þurfa að leggja fram læknisvottorð sem staðfestir gigtarsjúkdóm þeirra. Einnig þarf að sýna fram á skráningu í nám og veita greinargóða lýsingu á aðstæðum sínum. Aðeins félagar í Gigtarfélaginu geta sótt um styrk.
Hvernig er sótt um?
Ekki er notast við sérstakt umsóknareyðublað.
Úthlutun og umsóknarfrestur
Úthlutun úr Þorbjargarsjóði fer ekki fram árlega, og því er mikilvægt að fylgjast með tilkynningum frá Gigtarfélagi Íslands og Sjálfsbjörg um opnun umsóknarfrests.