0%
Loading ...

Um okkur

Gigtarfélag Íslands

Um Gigtarfélagið 

Gigtarfélagið var stofnað 9. október 1976 og er félagasamtök sem vinna að hagsmunamálum einstaklinga með gigtarsjúkdóma og skyld heilsufarsvandamál á Íslandi. Félagið er eitt af stærstu sjúklingafélögum á Íslandi, enda fær að jafnaði einn af hverjum fimm Íslendingum gigtarsjúkdóm einhvern tímann á lífsleiðinni.

Félagið starfað lengst af í Ármúla 5 í Reykjavík en flutti starfsemi sína árið 2022 í Brekkuhús 1 í nýuppgert húsnæði sem hentar betur þörfum starfseminnar og stenst betur kröfur nútímans um aðgengi. Gigtarfélagið hefur frá upphafi haft það að markmiði að:

Hlutverk og markmið

  • Bæta lífsgæði fólks með gigt með forvörnum, fræðslu, stuðningi og þjónustu.
  • Stuðla að rannsóknum á gigtarsjúkdómum og meðferð þeirra.
  • Vinna að bættri heilbrigðisþjónustu og aðgengi að greiningu og meðferð.
  • Fræða almenning og heilbrigðisstarfsfólk um gigtarsjúkdóma.
  • Styrkja félagslegt net gigtarsjúklinga með hópastarfi og jafningjastuðningshópum.

Helstu þjónustur og verkefni

  • Fræðsla: Bæklingar, vefefni og fyrirlestrar um ýmsa gigtarsjúkdóma og meðferðir.
  • Endurhæfing: Félagið býður upp á sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun, vatnsleikfimi og handafimi sem sérhæfð er að þörfum fólks með gigt.
  • Ráðgjöf: Félagið veitir  ráðgjöf um sjúkdóma, réttindi.
  • Félagsstarf: Hópar og deildir víðsvegar um landið með viðburði, samveru og stuðning.
  • Styrktarsjóðir: Þorbjargarsjóður og fleiri styrkir til náms og rannsóknaverkefna.

Félagsaðild

Allir sem hafa áhuga á eða tengjast gigtarmálum geta orðið félagar. Félagsmenn fá aðgang að:

  • Reglulegu fréttabréfi.
  • Ráðgjöf og fræðslu.
  • Aðgangur að fræðsluefni á heimasíðu.
  • Jafningjastuðningshópum og öðru hópastarfi bæði á staðnum í Brekkuhúsum og á Facebook.
  • Afslættir hjá samstarfsaðilum.

Heimasíða og tengiliðir