0%
Loading ...

Félagsstarf

Hittu aðra sem deila reynslu sinni

Að greinast með gigt getur verið erfitt og haft áhrif á lífsgæði, starfsgetu og daglegt líf. Læknisþjónusta skiptir máli, en hún nær ekki alltaf utan um allar áskoranir langvinns og oft ósýnilegs sjúkdóms.

Í jafningjastuðningshópum hittir fólk aðra sem skilja lífið með gigt og getur deilt reynslu, ráðum og stuðningi í öruggu og skilningsríku umhverfi. Slíkur stuðningur dregur úr einmanaleika, eykur sjálfstraust og hjálpar fólki að finna leiðir til betri lífsgæða.

Jafningjahópar Gigtarfélagsins eru lokaðir og aðeins fyrir félaga með viðkomandi sjúkdóm, sem tryggir trúnað, öryggi og sameiginlega reynslu allra þátttakenda.

Mikilvægt: Þegar fólk sækir um að ganga í hópinn þarf það að svara „membership question“. Ef því er ekki svarað verður umsókninni ekki samþykkt.

Jafningjastuðningshópar Gigtarfélags Íslands

Þetta er lokaður hópur fyrir félagsmenn í Gigtarfélaginu

Lupus

Lokaður hópur

Lokaður hópur fyrir félaga  sem eru með sjúkdóminn eða fjölskyldumeðlimi, sem þarf að fá boð inn í hittist mánaðarlega, ýmist að kvöldi til eða í kringum hádegi til skiptis.

Til að komast inn þarf að svara spurningum um hvort maður er með sjúkdóminn og hvort maður sé í félaginu. Án svara við spurningunum er fólki ekki bætt inn í hópinn

Hafðu samband til að skrá þig í Lupus hópinn.

Þetta er lokaður hópur fyrir félagsmenn í Gigtarfélaginu

Sjögrens

Lokaður hópur

Lokaður hópur fyrir félaga  sem eru með sjúkdóminn eða fjölskyldumeðlimi, sem þarf að fá boð inn í hittist mánaðarlega, ýmisst að kvöldi til eða í kringum hádegi til skiptis.

Til að komast inn þarf að svara spurningum um hvort maður er með sjúkdóminn og hvort maður sé í félaginu. Án svara við spurningunum er fólki ekki bætt inn í hópinn

Hafðu samband til að skrá þig í Sjögrens hópinn.

Þetta er lokaður hópur fyrir félagsmenn í Gigtarfélaginu

Liðagigtarhópur

Lokaður hópur

Liðagigt er sjálfsofnæmissjúkdómur sem veldur bólgum, verkjum og stirðleika í liðum og getur haft áhrif á daglegt líf einstaklinga. Þrátt fyrir að vera algengur sjúkdómur, getur lífið með liðagigt verið einmanalegt og flókið án viðeigandi stuðnings.

Hægt er að sækja um aðild með skráningu.

Þetta er lokaður hópur fyrir félagsmenn í Gigtarfélaginu

Þvagsýrugigt

Hópur fyrir félaga í Gigtarfélaginu sem eru með þvagsýrugigt. Á Facebook er öflug grúppa fyrir hópinn en hann hittist einni einu sinni í mánuði í húsnæði Gigtarfélagsins í Brekkuhúsum. Fundunum er jafnframt streymt á Teams

Hægt er að sækja um aðild með skráningu.

Þetta er opinn hópur fyrir félagsmenn í Gigtarfélaginu

Spjallhópur

Sameiginlegur Hópur fyrir fólk óháð því hvaða gigtarsjúkdóm það er með Jafningjastuðningur er mikilvægur til að hjápa fólki að kljást við gigtarsjúkdóma og er því mikilvægt að hafa vettvang til að ræða saman.

Hópurinn hittist einu sinni í mánuði í húsnæði Gigtarfélagsins til að spjalla saman um allt milli himins og jarðar yfir kaffibolla og er einnig með hóp á Facebook.

 

Hægt er að sækja um aðild með skráningu.

Þetta er lokaður hópur fyrir félagsmenn í Gigtarfélaginu

Foreldrahópur gigtveikra barna

Lokaður hópur fyrir foreldra barna með gigt þar sem hægt er að fá upplýsingar og deila reyslu. Hópurinn er á Facebook og er reglulega með fundi sem oftst eru á Teams.

Hægt er að sækja um aðild að hópnum með skráningu. 

Þetta er lokaður hópur fyrir félagsmenn í Gigtarfélaginu

Norðurlandsdeild

Vettvangur fyrir félaga í Gigtarfélaginu sem búsettir eru á Norðurlandi til að ræða saman og skiptast á upplýsingum.

Hægt er að sækja um aðild að hópnum með skráningu. 

Þetta er lokaður hópur fyrir félagsmenn í Gigtarfélaginu

Vefjagigtarhópur

Hópur fyrir félaga í Gigtarfélaginu sem eru með vefjagigt. Mánaðarlegir fundir verða í húsnæði Gigtarfélagsins í Brekkuhúsum sem hægt verður að fylgjast með á Teams fyrir þá sem ekki komast á staðinn.

Hægt er að sækja um aðild að hópnum með skráningu. 

Þetta er lokaður hópur fyrir félagsmenn í Gigtarfélaginu

Ungt fólk með gigt

Spjallhópur á Facebook fyrir fólk undir 35 ára sem er með gigt. Margir alvarlegir gigtarsjúkdómar greinast hjá ungu fólki og því er mikilvægt að geta verið í sambandi við aðra sem deila svipaðri reynslu.

Hægt er að sækja um aðild að hópnum með skráningu. 

Þetta er lokaður hópur fyrir félagsmenn í Gigtarfélaginu

Slitgigtarhópur

Slitgigtarhópur Gigtarfélagsins er fyrir félaga í Gigtarfélaginu sem eru með slitgigt.

Hægt er að sækja um aðild að hópnum með skráningu. 

Þetta er lokaður hópur fyrir félagsmenn í Gigtarfélaginu

Hrygggigt

Lokaður hópur

Lokuð grúppa á FB.

Hægt er að sækja um aðild að hópnum með skráningu.