Upplestur hjá Leshringnum
Þriðjudaginn 26. nóvember kl 14:00 mætir Óttar Guðmundsson hjá Leshring Gigtarfélagsins og les úr nýjustu bók sinni "Kallaður var hann kvennamaður".
Upplesturinn verður í fundarsal Gigtarfélagsins, Brekkuhúsum 1 í Grafarvogi.
Sigurður Breiðfjörð skáld og samtímamenn hans er viðfangsefni Óttars Guðmundssonar geðlæknis í þessari bók. Sigurður fæddist í lok 18. aldar í Rifgirðingum í mynni Hvammsfjarðar. Hann var um árabil vinsælasta og mest lesna skáld þjóðarinnar. Drykkjuskapur og kæruleysi spilltu þó mjög fyrir skáldinu. Hann lenti í útistöðum við réttvísina vegna tvíkvænismáls sem lagði að lokum líf hans í rúst. Helsti andstæðingur Sigurðar var þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson sem réðist harkalega gegn honum í Fjölni. Örlög Sigurðar og Jónasar eru samofin. Báðir voru þeir undrabörn í skáldskap en dóu úr alkóhólisma og vesaldómi á besta aldri.
Leshringurinn hittist að jafnaði fjórða þriðjudag í mánuði yfir vetrartíman og er opinn öllum áhugasömum.