Mannréttindi í kreppu - hvað er framundan? Fundur Á Grand Hótel við Sigtún

31. mars 2009

Næsti fundur í fundaröð ÖBÍ og Þroskahjálpar nú fyrir kosningar verður á miðvikudaginn 1. apríl kl. 20 á Grand Hótel við Sigtún í sal sem nefnist Gullteigur. Fundi líkur um 22.

Frummælendur á fundinum eru:

-           Helgi Hjörvar alþingismaður

-           Helga Baldvins- og Bjargardóttir þroskaþjálfi

Til umræðu verður meðal annars:

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra.

-           Hvert er innihald samningsins?

-           Gagnast hann okkur á Íslandi núna?

-           Hverju þarf að breyta til að hægt sé að fullgilda samninginn?

-           Hvert verður framhaldið á fullgildingu samningsins?

 Pallborðsumræður að loknum framsögum.

Þátttakendur í pallborði verða frummælendur ásamt fulltrúum annarra stjórnmálaflokka,

Öryrkjabandalags Íslands og Landssamtakanna Þroskahjálpar. Táknmálstúlkar verða á staðnum og tónmöskvakerfi.  

Fundurinn er öllum opinn!                        

Fjölmennum á fundinn.