Gigtarfélagið Norðurlandi Eystra ! Aðalfundur og fræðsluerindi um slitgigt 24. mars nk.
Þriðjudaginn 24. mars nk. boðar Gigtarfélag Íslands, deild Norðurlands Eystra, til aðalfundar á Akureyri. Fundurinn verður haldinn kl. 20.00 á Hótel KEA.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Ingvar Teitsson, sérfræðingur í gigtarlækningum, halda erindi sem hann nefnir:
„Slitgigt. Helstu nýjungar í meðferð.”
Félagsmenn og aðstandendur eru hvattir til að mæta.
Allir eru velkomnir.
Stjórnin.