Ertu með hryggikt? Nýtt námskeið að hefjast!
Fræðslunámskeið sem ætlað er fólki með hryggikt fer af stað miðvikudaginn 27. febrúar kl. 19:30 í Gigtarmiðstöðinni að Ármúla 5, í Reykjavík.
Um er að ræða 3ja kvölda námskeið þar sem gigtarsérfræðingur, sjúkraþjálfari, iðjuþjálfi og félagsráðgjafi fjalla um greiningu sjúkdómsins, einkenni, meðferð, þjálfun, aðlögun að breyttum aðstæðum sem og tilfinningalega og félagslega þætti.