Umsóknarfrestur í Þorbjargarsjóð er til 10. desember

5. desember 2007

Stjórn styrktar- og minningarsjóðs Þorbjargar Björnsdóttur hefur ákveðið að veita styrk úr sjóðnum fyrir árið 2007.

Tilgangur sjóðsins er að styrkja gigtsjúka, einkum unga gigtarsjúklinga.

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Gigtarfélags Íslands, Ármúla 5, 108 Reykjavík, sem einnig veitir allar frekari upplýsingar.

Umsóknarfrestur er til 10 desember nk. Áformað er að styrkveiting fari fram fyrir Áramót.