Aðalfundur Vesturlandsdeildar Gigtarfélags Íslands

21. febrúar 2007

Laugardaginn 3. mars boðar Gigtarfélag Íslands, Vesturlandsdeild, til aðalfundar á Akranesi með félagsmönnum og öðrum sem áhuga hafa á málefninu.

Fundurinn verður kl. 14.00 í Grundaskóla á Akranesi.

Eftir aðalfundarstörf flytur Eggert S. Birgisson sálfræðingur erindi sem hann nefnir: "Vefjagigt og andleg líðan".

 Eggert mun fjalla um hvernig andleg líðan og einkenni vefjagigtar tengjast og hafa áhrif hvort á annað. Hvernig streita, kvíði, þunglyndi, depurð og sorg geta orsakast af vefjagigt og hver áhrif þeirra geta verið á sjálfan sjúkdóminn. Sömuleiðis verður fjallað um væntingar til bata og markmiðssetningu.

 Eggert S. Birgisson er sálfræðingur og lærði á Íslandi og í Danmörku. Lokaverkefni hans í sálfræði fjallaði um vefjagigt og síþreytu. Í starfi hefur hann fengist við meðferð vefjagigtar og síþreytu.

 Við hvetjum alla sem áhuga hafa að mæta og taka með sér aðstandendur og vini.

-Vesturlandsdeild