Þorbjargarsjóður

Þorbjargarsjóður

Tilgangur

Styrktar- og minningarsjóður Þorbjargar Björnsdóttur, er sjóður sem er í vörslu Gigtarfélags Íslands. Tilgangur sjóðsins er að styðja gigtarsjúklinga og þá einkum unga gigtarsjúklinga til náms. Styrkupphæð undanfarin ár hefur numið u.þ.b. 300 þúsund krónum.

Stjórn sjóðsins

  • Auður Inga Einarsdóttir, formaður
  • Gerður Gröndal, ritari
  • Einar S. Ingólfsson, meðstjórnandi

Umsóknarferli   

Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Gigtarfélags Íslands. Með hverri umsókn þarf að fylgja vottorð frá lækni er staðfestir gigtarsjúkdóm umsækjenda. 

Umsóknarfrestur er til 15. september 2011, stefnt er að úthlutun um miðjan október.

 

Því miður hefur úthlutun styrkja tafist. Reiknað er með að úthlutun liggi fyrir, um 20. nóvember í ár. Við biðjumst velvirðingar á þessari seinkun.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 

Útlit síðu: