GÍ á Suðurlandi
Selfoss - Aðalfundur Suðurlandsdeildar og fræðsla 19. nóvember kl. 19:00
Gigtarfélag Íslands boðar til aðalfundar Suðurlandsdeildar 19. nóvember næstkomandi kl.19:00. Fundurinn verður haldinn í Heilbrigðisstofnun Suðurlands í fundarherberginu í kjallara hússins. Farið verður yfir starfsemi deildarinnar og kosin stjórn. Fólk er hvatt til að mæta og hafa áhrif á starfsemina. Ef fólk hefur áhuga á að vinna með deildinni vinsamlega hafið samband við formann deildarinnar eða Helgu Magnúsdóttur á skrifstofu Gigtarfélagsins í síma 530-3600.
Eftir aðalfund eða um kl. 20:00 verður fræðsla um „áhrif langvinnra verkja og síþreytu hjá einstaklingum” sem sálfræðingurinn Eiríkur Líndal mun flytja og verða fyrirspurnir leyfðar á eftir.
