Vefjagigt- og Síþreyta

Upplýsingar um áhugahópinn.

Gönguhópur vefjagigtar- og síþreytuhóps hittist í Laugardalnum á hverjum laugardegi við skilti Grasagarðsins kl 11.00. Eftir gönguna er farið í Kornið í Borgartúni og spjallað fyir kaffi. Þar bætast við þeir sem treysta sér ekki í gönguna.

Facebook - Vefjagigtin


Í byrjun nóvember á síðasta ári var stofnaður fésbókarhópur (facebook group) undir nafninu „vefjagigtin”. Allir geta verið með í hópnum, hann er jafnt fyrir sjúklinga, aðstandendur og aðra sem hafa áhuga og vilja til að sýna stuðning. Hópurinn hefur hittst við mjög góðar undirtektir . Ákveðið hefur verið að í vetur muni hópurinn koma saman einu sinni í mánuði.  Staður og stund verða auglýst hér á síðunni þegar þær eru tiltækar.

Ef þú vilt komast í samband við hópinn hafðu samband við skrifstofu Gigtarfélagsins í síma: 530 3600.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Útlit síðu: