Um Gigtarfélagið
Gigtarfélag Íslands - Landssamtök gigtarfólks Stofnað 9. október 1976.
Um félagið
Í félaginu eru 5.200 félagar. Félagið hefur aðsetur og rekur Gigtarmiðstöðina að Ármúla 5 í Reykjavík. Gigtlækningastöð hefur verið þáttur í starfseminni frá því 1984, þ.e. göngudeilda sjúkra- og iðjuþjálfunar og aðstaða fyrir gigtarsérfræðinga. Meðferðir í iðju- og sjúkraþjálfun eru u.þ.b. 19.000 á ári. Félagið stendur fyrir hópþjálfun (leikfimi) fyrir gigtarfólk, í sundlaug og í sal, heldur námskeið og fræðslufundi um gigtarsjúkdóma og tengd efni. Hagnýta símaráðgjöf er hægt að sækja á Gigtarlínu félagsins, en þar svarar fagfólk spurningum tvisvar í viku, tvo tíma í senn, árið um kring.
Markmið og tilgangur
Markmið félagsins er að auka lífsgæði fólks með gigtarsjúkdóma sem og þeirra sem eiga á hættu að fá þá.
Tilgangur félagsins er að berjast gegn gigtarsjúkdómum með því
- að stuðla að almennri umræðu um gigtarsjúkdóma og áhrif þeirra á einstaklinga og samfélag
- að efla meðferð og endurhæfingu gigtsjúkra
- að efla forvarnir, s.s. fræðslu, þjálfun og rannsóknir
- að gæta hagsmuna gigtarfólks
Félagsstarf
Félagsstarf hefur aukist síðastliðin ár, einkum innan áhugahópa félagsins og deilda. En áhugahóparinir eru nú níu talsins og deildirnar fjórar.
Landshlutadeildir eru starfandi á: Norðurlandi Eystra, Suðurlandi, Austurlandi og Vesturlandi.
Áhugahópar
- Hryggiktarhópur
- Iktsýkishópur (liðagigt)
- Vefjagigtar- og síþreytuhópur
- Lupushópur (rauðir úlfar)
- Áhugahópur um heilkenni Sjögrens
- Áhugahópur um slitgigt
- Áhugahópur foreldra barna með gigtarsjúkdóma
- Áhugahópur ungs fólks með gigt
- Áhugahópur um Psoriasisgigt
- Áhugahópur um verki
Tengslanet
Gigtarfélag Íslands á aðild að Öryrkjabandalgi Íslands, tekur þátt í starfsemi Norræna Gigtarráðsins (Nordisk Reumaråd) og Evrópusamtökum gigtarfélaga (EULAR - Social Leagues). Félagið tók þátt í stofnun heimssamtakanna Arthritis and Rheumatism International (ARI) í Kaupmannahöfn 1994.
