Hópþjálfun
Almennar upplýsingar
Stundaskrá vetur 2012
Gigtarsjúkdómar hafa margvísleg áhrif á daglegt líf. Gildi þjálfunar er mikið fyrir alla og ekki síst fyrir gigtarfólk. Vegna sjúkdómsins og afleiðinga hans, svo og lyfjameðferðar, dregur úr vöðvastyrk og úthaldi og í sumum sjúkdómum verða aflaganir á liðum og/eða hryggsúlu. GÍ býður upp á fjölbreytta hópþjálfun - leikfimi sem hentar fólki með gigt, þeim sem eiga við verkjavandamál að stríða og einnig er hún opin fyrir almenning sem vill þjálfa sig undir handleiðslu sérmenntaðs fagfólks.
Tilgangur hópþjálfununnar GÍ er að leiðrétta og viðhalda réttri líkamstöðu, auka og/eða viðhalda vöðvastyrk, úthaldi, liðleika liða og teygjanleika vöðva og kenna slökun. Markmið hvers einstaklings er misjafnt og fer það eftir því t.d. hvaða sjúkdóm hann hefur, hversu slæmur hann er, aldri, vinnu, íþróttaiðkun og fleiru. Reynt er að mæta þörfum hvers og eins. Að taka þátt í hópþjálfun veitir þátttakendum ákveðið aðhald, er hvetjandi og eflir félagsleg tengsl. Hún hjálpar einnig mörgum að halda sér góðum, starfshæfni og starfsþrek eykst og almenn líðan að sama skapi.
Sjúkraþjálfarar og hjúkrunarfræðingur sjá um þjálfunina.
Hópar í boði
Vatnsleikfimi: Vatnsleikfimin fer fram undir stjórn reyndra sjúkraþjálfara í laug Sjálfsbjargar Hátúni 12. Vatnsleikfimi er alhliða og góð þjálfun sem hentar mjög mörgum og þarna finna margir góða leið til þjálfunar sem ekki hafa fundið sig í annarri leikfimi. Algengt er að þeir sem eru með stoðkerfisverki eiga auðveldar með að gera æfingar í vatni heldur en á þurru landi. Vatnsleikfimin hefur verið gríðarlega vinsæl og færri komist að en vilja. Kenndir eru fjórir 40 mínútna tímar mánudaga og miðvikudaga, léttari leikfimi kl.15:05 og 15:50 og þyngri leikfimi kl. 16:35 og 17:20. Kennarar eru: Jóhanna Helgadóttir, Þóra Björg Sigurþórsdóttir, Unnur Sædís Jónsdóttir og Rannveig Gunnlaugsdóttir
Karlaleikfimi: Við bjóðum upp á frísklega karlaleikfimi þar sem áhersla er lögð á þrekþjálfun, liðkun, líkamsbeitingu og slökun. Þessi leikfimi getur hentað karlmönnum á öllum aldri hvort sem þeir eru með gigt eða ekki en vilja æfa í rólegu umhverfi undir stjórn og eftirliti sjúkraþjálfara. Kennt er mánudaga og miðvikudag kl. 18:15. Kennarar eru Þóra Björg Sigþórsdóttir og Rannveig Gunnlaugsdóttir.
Róleg alhliða leikfimi: Alhliða leikfimi þar sem unnið er með þol, styrk, teygjur og slökun. Auk þess er lögð áhersla á að fræða um og bæta líkamsbeitingu og hugað að liðvernd. Þessir tímar henta fólki með gigt og einnig geta þeir hentað vel fólki sem er að byrja þjálfun eftir langt hlé eða veikindi. Sjúkraþjálfarar stjórna tímunum. Boðið er upp á Hádegisleikfimi mánudaga og fimmtudaga kl. 13:30 kennarar þar eru Berghildur Ásdís Stefánsdóttir og Rannveig Gunnlaugsdóttir og Leikfimi I mánudaga og miðvikudaga kl. 17:10 og hana kenna Þóra Björg Sigurþórsdóttir og Rannveig Gunnlaugsdóttir.
STOTT-PILATES: STOTT-PILATES: Gigtarfélagið hefur boðið upp á STOTT-PILATES frá því haustið 2007. Í SOTT-PILATES er lögð áhersla á að þjálfa stöðugleika í bol, mjaðmagrind og axlargrind með það að markmiði að bæta vöðvastyrk og líkamstöðu. Þessar æfingar geta hentað nánast hverjum sem er, þar sem hægt er að gera fjölmargar útgáfur af hverri æfingu og í flestum tilfellum er einnig hægt að aðlaga þær þörfum hvers og eins. Kennarar eru Margrét Stefánsdóttir og Rannveig Gunnlaudsdóttir þær eru báðar sjúkraþjálfarar og STOTT-PILATES kennarrar. Tímar í boði eru á þriðjudögum og fimmtudögum kl.17:10 byrjendahópur og kl 16:15 framhaldshópur sem Margrét kennir. Einnig bjóðum við upp á einkatíma í STOTT-PILATES og mánaðarlöng námskeið á þriðjudagsmorgnum kl 10:20 og fimmtudagsmorgnum kl. 9:50 sem Rannveig kennir.
Jóga: Í jóganu er líkaminn þjálfaður með rólegum liðkandi hreyfingum og teygjum ásamt öndun. Áhersla er lögð á að hver og einn hlusti á sinn líkama skoði og taki tillit til þess hvernig honum líður og hvað hann treysti sér til að gera hverju sinni. Kennari er Rut Rebekka jógakennari og hjúkrunarfræðingur, hún er sjálf með hryggikt. Jógað er kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl.16:35
Ný námskeið í vetur
Styrkur-jafnvægi-Tai Chi: Létt leikfimi bygg á grunnæfingum TAI CHI. Þetta eru mjög rólegir leikfimitímar þar sem áhersla er á þjálfa,líkamsvitund, jafnvægi, samhæfingu, styrk og úthald með rólegum hreyfingum. Inn í þessa tíma verður blandað T‘ai chi sem er ævaforn kínversk heilsurækt og var raunar upprunalega sjálfsvarnaríþrótt. Einkenni t‘ai chi eru hægar, mjúkar og flæðandi hreyfingar. Lögð er áhersla á slökun í hreyfingum og öndun. Rannsóknir benda til að þetta form æfinga geti hentað gigtarfólki einstaklega vel og bætt líkamlega færni þess. Kennt er þriðjudaga og föstudaga kl 13:00, kennarar eru Anna Kristín Kristjánsdóttir og Hulda Jeppesen.
Stafganga: Stafgöngutímar byrja laugardaginn 21. janúar 2012 og standa út mars. Gengið verður í Laugardalnum frá aðal-inngangi Laugardalshallar. Kennt verður að ganga og þjálfa með stafgöngustafi. Með stafgöngu styrkjast vöðvar í efri búk umtalsvert meira en í venjulegri göngu en jafnframt er dregið úr álagi á liði í neðri hluta, ökkla, hné, mjaðmir og hrygg. Kennari er Styrmir Sigurðsson.
Upplýsingar og skráning
Hópþjálfunin er starfrækt á haust, vetur og vor og er tvisvar í viku. Á skrifstofu Gigtarfélags Íslands í síma 530 3600 er hægt að fá frekari upplýsingar og skrá sig í hópþjálfunina. Mörg stéttarfélög veita félagsmönnum sínum líkamsræktarstyrk sem hægt er að nota upp í kostnað við hópþjálfunina.
Verkefnastjóri hópþjálfunar
Berghildur Ásdís Stefánsdóttir sjúkraþjálfari.
