Fræðsla og ráðgjöf
Fræðsla og útgáfa á vegum GÍ
Markmið fræðslu GÍ er að auka þekkingu á gigtarsjúkdómum. Áhrif gigtarinnar eru margvísleg. Eitt mikilvægasta tækið í baráttunni við gigtarsjúkdómana er að hafa sem víðtækasta þekkingu um sjúkdóminn og nota fyrirbyggjandi aðferðir til að auka færni og bæta líðan.
Gigtarfélag Íslands heldur fræðslufundi, námskeið, gefur út tímarit og bæklinga. Félagið skipuleggur fræðslustarfið í samráði við áhugahópa félagsins og fagaðila er að verkefnum koma
Fræðslufundir
Eru almenn fræðsla um einstaka gigtarsjúkdóma og annað sem tengist því að lifa með gigt.
Námskeið
Námskeiðin eru ætluð einstaklingum með gigtarsjúkdóma og aðstandendum þeirra. Markmiðið er að miðla aukinni þekkingu til þátttakenda um sjúkdóm sinn, afleiðingar hans og hvað þeir geti sjálfir gert til að stuðla að betri líðan. Annarsvegar eru í boði 3ja kvölda grunnnámskeið þar sem gengið er út frá ákveðnum gigtarsjúkdómi og svo sex kvölda sjálfshjálparnámskeið sem eru fyrir fólk með mismunandi gigtarsjúkdóma. Námskeiðin eru á kvöldin, 2 tíma í senn og einu sinni í viku. Miðað er við 12 - 14 þátttakendur á hverju námskeiði. Grunnnámskeið eru um vefjagigt, slitgigt, iktsýki og hryggikt. Verið er að skipuleggja námskeið um rauða úlfa.
Útgáfustarfsemi
Tímarit félagsins heitir Gigtin og er gefið út tvisvar sinnum á ári, í maí og í nóvember. Tilgangur blaðsins er að auka framboð að aðgengilegu efni á íslensku um gigtarsjúkdóma og gera félagsstarfinu skil.
GÍ hefur gefið út bæklinga um ýmsa gigtarsjúkdóma. Efnið er skrifað af fagfólki og sjúklingum, sumt þýtt og staðfært, annað samið frá grunni. Bæklinga er hægt að nálgast á skrifstofu félagsins, eða fá þá senda í pósti.
Eftirtaldir bæklingar eru til
- Beinþynning
- Heilkenni Sjögrens
- Hryggikt
- Iktsýki
- Slitgigt
- Rauðir úlfar
- Vefjagigt
- Baráttan við vefjagigtina
- Gigt og samlíf
- Gott Líf? Að takast á við lífið með langvinnan sjúkdóm
- Gigtarfólk í Evrópu. Stefnuyfirlýsing fyrir þriðja aldatuginn
- Handarslitgigt, hagnýt ráð
- Ert þú með gigt?
Verkefnastjóri
Helga Magnúsdóttir
