Þjónusta GÍ
- Almennt um þjónustu sem hægt er að fá á Gigtarmiðstöðinni Ármúla 5
Gigtarfélag Íslands er til húsa að Ármúla 5 í Reykjavík og rekur þar miðstöð fyrir fólk með gigtarsjúkdóma. Starfsemi miðstöðvarinnar miðast við forvarnir í víðum skilningi þess orðs, auk þess sem félagsstarfsemin á höfuðborgarsvæðinu fer þar fram.
Á miðstöðinni má finna þjónustu er snýr að viðhaldsendurhæfingu, - sjúkra- og iðjuþjálfun, fræðslu og ráðgjöf fyrir gigtarfólk og aðstandendur, hópleikfimi, fótaðgerðastofu og gigtarlækni. Félagsstarfsemin á höfuðborgarsvæðinu fer fram í húsinu. Hér til vinstri er frekari lýsing á hverjum þjónustuþætti fyrir sig og hvetjum við fólk til að skoða þá nánar.
Tilgangur félagsins er að berjast gegn gigtarsjúkdómum með því ..
- að stuðla að almennri umræðu um gigtarsjúkdóma og áhrif þeirra á einstaklinga og samfélag
- að efla meðferð og endurhæfingu gigtsjúkra
- að efla forvarnir, s.s. fræðslu, þjálfun og rannsóknir
- að gæta hagsmuna gigtarfólks
