Jólakort
Jólakort til styrktar starfsemi Gigtarfélag Íslands
Gigtarfélag Íslands hefur sent í nokkur ár jólakort til félagsmanna og hóps af fólki völdu af handahófi ásamt beiðni um fjárframlag til styrktar starfsemi félagsins. Hópinn höfum við stækkað á hverju ári, en við höfum fengið einstaklega góðar undirtektir við þessari beiðni okkar.
Við biðjum fólk að athuga að öllum er frjálst að nota kortin hvort sem það sér sér fært að styðja starfsemina eður ei.
Vilji fólk styðja félagið með annarri upphæð en á greiðsluseðlinum er, þá eru banka- upplýsingarnar sem hér segir, (banki - höfuðbók - reikningur) 0313 -26 -000691 og kennitala félagsins 6704780769.
Valgreiðslan í netbankanum fellur út eftir ákveðinn tíma, en fólk getur að sjálfsögðu hafnað henni og sér hana ekki eftir það.
Stuðningur félagsmanna og annarra velunnara við starfsemina er félaginu mjög mikilvægur. Hafi allir þökk fyrir.
