Happdrætti

Happdrætti Gigtarfélag Íslands

Gigtarfélag Íslands hefur staðið fyrir happdrætti í þeirri mynd sem það er nú frá árinu 1997. Félagið hafði á árunum áður staðið fyrir árlegu happdrætti, en fyrir 1997 hafði það þá legið niðri í nokkur ár.

Um er að ræða vor- og hausthappdrætti ár hvert. Happdrættið er félaginu mikilvæg fjáröflun. Félagið þakkar öllum þeim sem stutt hafa starfsemina á undanförnum árum og óskar þeim velfarnaðar.

Helstu samstarfs- og stuðningsaðilar við framkvæmd hafa verið frá 1997; Hekla hf, Búnaðarbanki Íslands, nú KB -Banki. Einnig hefur félagið átt gott samstarf við Úrval-Útsýn og EJS auk annarra. Félagið þakkar stuðninginn og samstarfið.

Allar frekari upplýsingar um happdrættið er að fá á skrifstofunni í síma 530 3600.

Hér til vinstri eru vinningsnúmer síðustu happdrætta birt.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Útlit síðu: