Tryggingastofnun
Bifreiðamál hreyfihamlaðra
Margir einstaklingar þurfa nauðsynlega á bifreið að halda til að komast ferða sinna vegna hreyfihömlunar af völdum sjúkdóma og á það sama við um framfærendur barna með langvinna sjúkdóma og/eða fatlanir. Hjá Tryggingastofnun ríkisins (TR) er hægt að sækja um uppbót, styrk og/eða lán til bifreiðakaupa. Einnig er hægt að sækja um uppbót vegna reksturs bifreiðar ef sýnt er að viðkomandi geti ekki verið án uppbótarinnar.
Við mat á umsókn um uppbót eða styrk vegna bifreiðakaupa er fyrst og fremst litið á bifreið sem hjálpartæki. Að viðkomandi þurfi nauðsynlega á bifreið að halda til að geta stundað atvinnu, endurhæfingu, þjálfun, nám eða reglubundnar læknismeðferðir. Tekið er tillit til annarra aðstæðna sem umsækjandi tilgreinir, ef sýnt þykir að hann komist ekki af án bifreiðar.
Uppbót og styrkur til bifreiðakaupa
Hverjir geta sótt um uppbót og styrk til bifreiðakaupa?
Uppbót er eingöngu heimilt að veita að uppfylltum ákveðnum skilyrðum: Þeim sem eru örorkulífeyrisþegar, örorkustyrkþegar eða ellilífeyrisþegar yngri en 75 ára og eru hreyfihamlaðir og framfærendum barna sem fá umönnunargreiðslur og þurfa nauðsynlega á bifreið að halda vegna barnsins. Hreyfihömlun umsækjanda eða barns þarf að vera ótvíræð og mat á henni að liggja fyrir. Umsækandi þarf sjálfur að hafa ökuréttindi eða annar heimilismaður. Skráður eigandi bifreiðarinnar verður að vera umsækjandi eða maki hans. Þegar um barn er að ræða þarf bifreiðin að vera skráð á forráðamann þess.
Hvað er átt við með hreyfihömlun?
Með hreyfihömlun er átt við ýmsa alvarlega sjúkdóma eða fötlun sem gerir það að verkum að einstaklingur kemst ekki ferða sinna án bifreiðar. Nefna má sjúkdóma sem valda mæði eða hjartverkjum svo sem hjarta- og æðasjúkdómar eða aðrir sjúkdómar t.d. gigtarsjúkdómar sem valda lömun eða liðskemmdum í ganglimum. Hafa ber í huga að hreyfihömlun er alltaf læknisfræðilegt mat og byggir á upplýsingum sem læknir staðfestir með læknisvottorði en er ekki endilega ákveðin sjúkdómsgreining.
Hvernig er sótt um uppbót eða styrk?
Hægt er að sækja um uppbót eða styrk allt árið um kring, en úthlutað er fjórum sinnum á ári. Læknisfræðilegt mat þarf alltaf að liggja til grundvallar við mat á hreyfihömlun og þörf á bifreið. Skila þarf inn sérstöku læknisvottorði og umsækjandi þarf einnig að skila inn eigin umsókn. Mikilvægt er að fram komi í læknisvottorði í hverju hreyfihömlun viðkomandi felst og hvað það er sem gerir það að verkum að hann getur ekki nýtt sér almenningssamgöngur. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu TR: www.tr.is eða hjá stofnunni sjálfri eða umboðum hennar.
Hversu há er uppbótin og styrkurinn sem veittur er til bifreiðakaupa?
Heimilt er að veita uppbót eða styrk á fimm ára fresti og skal kvöð vera þinglýst á bifreiðinni.
Almennt er upphæð uppbótarinnar 250.000 kr., en 500.000 kr. ef einstaklingur er að kaupa sína fyrstu bifreið.
Heimilt er að veita 1.000.000 kr. styrk þeim sem þarf að nota tvær hækjur og/eða er bundinn hjólastjól að staðaldri.
Einnig er heimilt að veita á sex ára fresti styrk allt að 50-60% af kaupverði bifreiðar, þ.e. grunnverði án aukabúnaðar, sé um að ræða einstakling sem ekki kemst af án sérútbúinnar og dýrrar bifreiðar vegna mikillar fötlunar. Heimildin á þó einungis við þegar umsækjandi ekur sjálfur og þarf á bifreið að halda til að stunda nám eða launaða vinnu.
Hvenær þarf að vera búið að kaupa bifreið?
Ekki má líða lengri tími en 12 mánuðir frá því að umsækjandi fær uppbót eða styrk afgreiddan og þar til bifreið er keypt. Ef umsækjandi getur keypt bifreið áður en hann fær styrkinn/uppbótina afgreiddan má heldur ekki líða lengri tími en 6 mánuðir frá því að bifreið er keypt þar til að uppbót eða styrkur er nýttur.
Þegar umsókn um uppbót eða styrk hefur verið samþykkt fær viðkomandi staðfestingu um það frá TR. Við bifreiðakaup er hægt að fara með þessa staðfestingu til söluaðila sem lækkar verð bifreiðar sem nemur upphæð uppbótar eða styrks og sér sá aðili um að innheimta upphæðina frá TR ef styrkþegi óskar þess. Þinglýsa þarf kvöð á bifreiðina áður en styrkur/uppbót er greidd út.
Þarf að endurgreiða uppbótina eða styrkinn ef aðstæður breytast?
Ef aðstæður breytast þannig að viðkomandi þarf að selja bifreiðina innan 5 ára er upphæðin endurkræf að hluta. Dæmi: Selji styrkþegi bifreiðina eftir þrjú ár, þarf að endurgreiða tvö ár. Ef styrkþegi eða bílstjóri deyr, þurfa erfingjar ekki að endurgreiða styrkinn ef þeir selja bifreiðina ekki innan þessara 5 ára marka.
Uppbót vegna reksturs bifreiðar
Heimilt er að greiða ellilífeyrisþega, örorkulífeyrisþega og örorkustyrkþega uppbót vegna reksturs bifreiðar. Sýna verður fram á nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar og að umsækjandi geti ekki komist af án uppbótarinnnar.
Hversu há er uppbótin?
Upphæð uppbótar vegna reksturs bifreiðar er 8.247 kr. á mánuði. Sömu forsendur gilda um þessa umsókn og við umsókn um uppbót eða styrk vegna bifreiðakaupa. Uppbót vegna reksturs bifreiðar er hugsuð sem viðbótarstyrkur við aðrar bætur sem viðkomandi hefur frá TR.
Hvernig er sótt um uppbót vegna reksturs bifreiðar?
Sótt er um uppbót vegna reksturs bifreiðar á sömu eyðublöðum og sótt er um uppbót eða styrk vegna bifreiðakaupa.
Lán til kaupa á bifreið
Hægt er að sækja um lán til kaupa á bifreið til TR. Upphæð lánsins er 180.000 kr.. Fyrir þá sem ganga við tvær hækjur eða nota hjólastól er hægt að sækja um 340.000 kr. Lánin eru miðuð við meðalvexti óverðtryggðra skuldabréfalána og eru til þriggja ára. Þau eru endurgreidd með jöfnum mánaðargreiðslum, sem dregnar eru af bótagreiðslum frá TR. Lánin eru tryggð með veði í viðkomandi bifreið. Nýtt lán er mögulegt þegar eldra lán hefur verið endurgreitt að fullu.
Niðurfelling bifreiðagjalda
Rétt á niðurfellingu bifreiðagjalda eiga þeir sem fá greiddan örorkustyrk, örorkulífeyri og uppbót vegna reksturs bifreiðar frá TR og eru skráðir bifreiðaeigendur. Þeir sem fá greiddar umönnunargreiðslur vegna veikinda barna eiga einnig rétt á niðurfellingu bifreiðagjalds af einni bifreið sem forráðamaður barnsins er skráður fyrir.
Eigendur bifreiða sem eru nýttar í atvinnurekstri og bifreiða sem eru þyngri en 3.500 kg. eiga ekki rétt á niðurfellingu bifreiðagjalda.
Niðurfelling bifreiðagjalds á að koma sjálfkrafa þegar einstaklingur eða forráðamaður hefur fengið umsókn sína um uppbót vegna reksturs bifreiðar samþykkta. Ef það gerist ekki sjálfkrafa þarf viðkomandi að biðja þjónustumiðstöð TR eða umboðin um að koma staðfestingu til Ríkisskattstjóra.
Ýmis hjálpartæki vegna bifreiðar
TR greiðir eða tekur þátt í kaupum á nauðsynlegum hjálpartækjum eftir ákveðum reglum. Undir þessar reglur fellur ýmiss búnaður í bifreiðar, sem nauðsynlegur getur talist vegna fötlunar. Um getur verið að ræða að setja sjálfskiptingu í bifreiðar. Einnig er hægt að sækja um styrk vegna kostnaðar ýmiss annars búnaðar, t.d. sérstakra breytinga á hemlabúnaði og bensíngjöf og bílalyftu fyrir hjólastólanotendur.
Hvernig er sótt um hjálpartæki vegna bifreiðar?
Sækja þarf um hjálpartæki vegna bifreiðar á sérstökum eyðublöðum í samráði við lækna og/eða sjúkra- og iðjuþjálfa.
Ofangreindar upplýsingar eru byggðar á upplýsingum af heimasíðu
Tryggingastofnunar ríkisins (www.tr.is) og ábendingum frá Margréti S. Jónsdóttur, félagsráðgjafa og forstöðumanni þjónustumiðstöðvar Tryggingastofnunar ríkisins og er
henni þakkaður yfirlestur og gagnlegar ábendingar.
Tekið saman af Svölu Björgvinsdóttur og Jónínu Björgu Guðmundsdóttur, félagsráðgjöfum.
