Skattamál
Skattframtal: Lífeyrisþegar varðandi verktakagreiðslur
Verktakagreiðslur eru ekki forskráðar á framtal, þar sem gert er ráð fyrir að launþegi geri rekstrarskýrslu sem er eyðublað 4.10 eða 4.11. og færi nettó niðurstöðu á tekjublaðið í reit 24.
Þegar niðurstaðan er færð í þennan reit ætti að vera tryggt að tekjurnar séu inní stofni sem er til útreiknings tekna og þar af leiðandi komið inní útreikning frítekjumarks við útreikning lífeyrisgreiðslna.
Skattstofur á landinu bjóða ráðgjöf og aðstoð við gerð skattframtals eins og þið eflaust þekkið, mæli með því að benda þeim sem eru með verktakagreiðslur á það.
TR sendir ekki lengur út launamiða til lífeyrisþega og munum kynna það og þá um leið bendum við á meðferð verktakagreiðslna þar sem þær eru ekki forskráðar á framtal, en allar aðrar greiðslur frá okkur eru það.
15.01.´09
