Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) heyra undir Velferðarráðuneyti og annast framkvæmd sjúkratrygginga. Jafnframt semur stofnunin um og greiðir fyrir heilbrigðisþjónustu.
Sjúkratryggingar Íslands og Tryggingastofnun ríkisins reka sameiginlega afgreiðslu, þjónustu og upplýsingagjöf við viðskiptavini sína. Starfsfólk Sjúkratrygginga Íslands tekur jafnframt saman fróðleik og tölulegar upplýsingar um sjúkratryggingar á Íslandi.
Þjónustumiðstöð Sjúkratrygginga Íslands og Tryggingastofnunar er að Laugavegi 114, Reykjavík. Umboðsmenn SÍ og TR eru staðsettir hjá sýslumönnum, hægt er að fá nánari upplýsingar inn á heimasíðunni www.sjukra.is
Hér að neðan eru upplýsingar um afsláttarkort og hámarksgreiðslur fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu:
Hámarksgreiðslur gegn fullu gjaldi fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu
Á hverju almanaksári eru hámarksgreiðslur gegn fullu gjaldi fyrir læknisþjónustu og heilsugæslu eftirfarandi:
- Fyrir einstaklinga 18-66 ára kr. 29.500 á ári.
- Aldraðir 67 til og með 69 ára sem eru með skertan eða engan ellilífeyri kr. 23.600 á ári.
- Aldraðir 70 ára og eldri
Fólk 60 ára til og með 69 ára sem eru með óskertan ellilífeyri, öryrkjar og aldraðir 67 til og með 69 ára sem nutu örorkulífeyris fram til 67 ára kr. 7.400 á ári - Fyrir öll börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu kr. 8.900 á ári.
Eftir að hámarksgreiðslum er náð á viðkomandi rétt á afsláttarkorti.
Greiðslur sem gilda upp í afsláttarkort:- Komur á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis
- Vitjanir lækna
- Komur á slysadeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa
- Komur til sérfræðilækna á göngudeild sjúkrahúsa
- Rannsóknir á rannsóknastofum
- Geisla- og myndgreiningar og beinþéttnimælingar
- Sérfræðiviðtöl hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands
Aftur á móti er kostnaður vegna þjálfunar, lyfja, tannlækninga og fleira ekki tekinn með í hámarksupphæðina og veitir ekki rétt til afsláttarkorts.
Hvar og hvernig fær maður afsláttarkort?:
Sjúkratryggingum berast upplýsingar um flestar greiðslur frá sjálfstætt starfandi sérfræðingum sem eru með samning við SÍ. Sjúkratryggingum berast ekki upplýsingar frá heimilis- eða heilsugæslulæknum eða sjúkrahúsum, nema Landsspítala. Frá Landsspítala berast nánast öll gögn um göngudeildarþjónustu. Reikningum frá þeim sem ekki senda upplýsingar til Sjúkratrygginga Íslands skal eftir sem áður safna saman og senda til þjónustumiðstöðvar eða til umboða til að fá afsláttarkortið. Reikningar þurfa að berast til þjónustumiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands, Laugavegi 114, 150 Reykjavík. Einnig er hægt að senda reikninga til umboðsskrifstofa SÍ. Ef einstaklingar hafa greitt umfram ofangreind mörk og eru ekki enn komnir með afsláttarkort fá þeir þá fjárhæð endurgreidda að hluta. Endurgreiðslur eru lagðar beint inn á bankareikninga einstaklinga.
Mælt er með að fólk taki ljósrit af gögnum sínum áður en þau eru send til Sjúkratryggingar Íslands til að halda saman kostnaðinum í sambandi við læknis- og heilbrigðisþjónustu, vegna annarra mögulegra endurgreiðslna bæði frá Sjúkratryggingum og skattinum.
Notkun afsláttarkorts: Útgáfu plastkorta hefur verið hætt og er afsláttarkortið á vefnum. Ef þú ferð inn í Réttindagáttina sem er á forsíðu getur þú náð í afsláttarkortið og greiðsluskjöl. Ef þú ert með afsláttarkort greiðir þú minna fyrir heilbrigðisþjónustu og gildir afsláttarkortið út almanaksárið. Þótt hámarki vegna afsláttarkorts sé náð er mikilvægt að geyma áfram kvittanir vegna læknis- og heilsugæsluþjónustu þar sem fólk getur átt rétt á endurgreiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands fari kostnaður vegna læknis- og heilsugæsluþjónustu, lyfja og þjálfunar yfir ákveðið mark.
Endurgreiðslur vegna umtalsverðs læknis-, lyfja- og þjálfunarkostnaðar: Ef útgjöld vegna læknis-, lyfja- og þjálfunarkostnaðar (sjúkra-, iðju- og talþjálfunar) verða umtalsverð þá er SÍ heimilt að endurgreiða hluta þeirra. Endurgreiðslur eru háðar árstekjum og er endurgreitt fyrir þrjá mánuði í senn, þ.e. fyrir hvern ársfjórðung. Tekjur fjölskyldu og samanlagður læknis-, lyfja- og þjálfunarkostnaður miðast við einstaklinga með sama fjölskyldunúmer, þ.e. einstakling, hjón eða sambýlisfólk og börn þeirra undir 18 ára aldri. Miðað er við árstekjur árið áður en sótt er um endurgreiðslu. Allar kvittanir vegna útgjaldanna þurfa að fylgja með umsókn. Hægt er að nálgast betri upplýsingar og umsóknareyðublað á heimasíðu http://www.sjukra.is/lyf-og-hjalpartaeki/lyf/endurgreidslur-vegna-mikils-kostnadar/
Allar kvittanir vegna útgjalda þurfa að fylgja með umsókn.
Kostnaður vegna sjúkra- og iðjuþjálfunar
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) niðurgreiðir meðferð í sjúkra-og iðjuþjálfun að hluta, mismikið eftir aðstæðum. Allir greiða aukagjald vegna upphafsskoðunar í samræmi við aðrar meðferðir. Áður en farið er í sjúkraþjálfun þarf sjúklingur að leita til læknis og fá beiðni fyrir sjúkraþjálfun. Þá beiðni skal hafa meðferðis til sjúkra - og iðjuþjálfara.
Einstaklingar 18-66 ára án lífeyris
SÍ greiðir 30% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun af fyrstu 25 meðferðum, yfir 12 mánaða tímabil.
Hærri styrkir eru fyrir aldraða, lífeyrisþega, börn og einstaklinga með umönnunarkort frá (Tryggingastofnun ríkisins) TR
SÍ greiðir 80% af kostnaði við nauðsynlega þjálfun af fyrstu 25 meðferðum, yfir 12 mánaða tímabil, þ.e.
- börn og unglinga yngri en 18 ára
- einstaklinga með umönnunarkort frá SÍ
- lífeyrisþega með tekjutryggingu
Aldraðir og lífeyrisþegar sem eru án tekjutryggingar
SÍ greiðir 70% kostnaði við nauðsynlega þjálfun af fyrstu 25 meðferðir, yfir 12 mánaða tímabil
Nánari upplýsingar um sjúkra- og iðjuþjálfun eru inn á heimasíðu SÍ ásamt ítarlegri gjaldskrá http://www.sjukra.is/heilbrigdisthjonusta/thjalfun/
Lyfjakostnaður
Lyf skiptast í fjóra flokka (0-, E-, B og *-flokk) eftir greiðsluskiptingu milli einstaklings og SÍ. Greiðsla SÍ reiknast út frá viðmiðunarverði lyfsins, sem er lægsta verð sambærilegs lyfs á markaði. Einstaklingur greiðir að fullu fyrir lyf í 0 flokki, ákveðinn hluta fyrir lyf í E og B flokki upp að vissu hámarki og ekkert fyrir lyf sem tilheyra *- flokki. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða lægra hlutfall fyrir lyf merkt E- og B-. Upplýsingar um hvaða lyf tilheyra hverjum flokki er að finna á heimasíðu SÍ http://www.sjukra.is/lyf-og-hjalpartaeki/lyf/
Langtímanotkun lyfja : Þegar notuð eru mörg lyf um lengri tíma sem SÍ greiðir ekki eða greiðir aðeins að hluta er heimilt að lækka hlutfall sjúklings og er greiðslumerking þá færð um einn greiðsluflokk svo lyf í greiðsluflokki 0 verður E-merkt (s.s. sýklalyf og ýmis verkjalyf)
Notkun margra lyfja: Þegar sjúklingi er brýn nauðsyn að nota mörg lyf að staðaldri eða í lengri tíma, sem SÍ greiðir ekki eða aðeins að hluta getur læknir viðkomandi sótt um lyfjaskírteini ef lyfin eru 5 eða fleiri og er greiðslumerking færð um einn flokk, enda sé í vottorði sjúkdómsgreining eða sjúkrasaga sem rökstyður tiltekna lyfjameðferð. (0-merkt verður E-merkt og E-merkt verður B-merkt).
Lausasölulyf: Athuga í samráði við lækni hvort lausasölulyf (s.s. verkjalyf) sem tekin eru að staðaldri geti verið hluti af þeim lyfjum sem sækja á/sótt hefur verið um greiðsluþátttöku í (lyfjaskírteini) og ætti þá að skrifa út á lyfseðil.
Ábendingar: Hafa ber í huga að sértækar vinnureglur gilda um nokkur lyf og falla þau þá ekki undir almenna reglur, þó þau teljist með.
Munið einnig eftir að biðja lækni ykkar að skrifa upp á þriggja mánaða lyfjaskammta þegar um er að ræða lyf sem tekin eru að staðaldri og fá fjölnotalyfseðil.
Ítarlegri upplýsingar er hægt að fá hjá Sjúkratryggingum s. 515-0000 http://www.sjukra.is/ eða hjá Gigtarlínu Gigtarfélags Íslands s. 530-3606 sem er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 14.00-16.00.
Endurskoðað í janúar 2011
