Réttindi

Réttindi

Samfélagsleg réttindi

 Langvinnur gigtarsjúkdómur hefur margvísleg áhrif á líðan og fjárhagsafkomu. Útgjöld sem tengjast sjúkdómnum, s.s. fyrir heilbrigðisþjónustu og lyf, verða oft meiri en maður reiknar með og ef sjúkdómurinn veldur því að starfsgeta minnkar, tímabundið eða til langframa hefur það mikil áhrif á fjárhagsafkomu.

Réttindi  

Við leggjum til að fólk kanni rétt sinn sem fyrst, bæði hjá því opinbera og sveitafélagi viðkomandi, svo og áunnin réttindi hjá vinnuveitenda, stéttarfélagi og lífeyrissjóði.  

Hér bendum við á ákveðin atriði sem vert er að hafa í huga í sambandi við mögulegar endurgreiðslur vegna sjúkdóms hjá Tryggingastofnun og mögulega lækkun á skatti vegna mikils umframkostnaðar vegna sjúkdóms.

Gigtarlínan   

Einnig er hægt að fá upplýsingar varðandi réttindamál hjá símaráðgjöf okkar, Gigtarlínunni þar sem fagfólk situr fyrir svörum. Gigtarlínan er opin á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 14.00 til 16.00 í síma 530-3606.

Stofnanir þar sem hægt er að nálgast upplýsingar og ráðgjöf 

Helstu stofnanirnar eru: 

  • Tryggingastofnun ríkisins
  • Félagsþjónusta sveitafélaga
  • Svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra
  • Landssamtök lífeyrissjóða
  • Nánar er fjallað um hverja stofnun hér fyrir neðan.

 Tryggingastofnun ríkisins (TR) 

 TR sér um framkvæmd almannatrygginga en til þeirra teljast lífeyristryggingar, sjúkratryggingar og slysatryggingar. Stofnunin starfar skv. lögum um almannatryggingar nr. 117/1993 og lögum um félagslega aðstoð nr. 118/1993. Til sjúkratrygginga heyra m.a. reglur um réttindi til sjúkradagpeninga, reglur um greiðslur fyrir læknishjálp, hámarksgreiðslur og afsláttarkort, reglur um endurgreiðslur vegna læknis-, lyfja- og þjálfunarkostnaðar, reglur um ferðakostnað innanlands vegna sjúkdómsmeðferðar, reglur um greiðsluþátttöku hjálpartækja og lyfja, reglur um greiðsluþátttöku í sjúkra- og iðjuþjálfun og í tannlækningum. Til lífeyristrygginga heyra m.a. reglur um örorkulífeyri, endurhæfingarlífeyri, örorkustyrk, umönnunargreiðslur vegna barna, bifreiðamál hreyfihamlaðra, ýmis hlunnindi lífeyrisþega og heimilisuppbót. Þjónustumiðstöð TR leiðbeinir fólki um réttindi sín. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á heimasíðu TR: http://www.tr.is og eins gefur TR út bæklinga um réttindi landsmanna.

 Félagsþjónusta sveitafélaga 

 Félagsþjónustan starfar skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, barnaverndarlögum, lögum um málefni fatlaðra og lögum um málefni aldraðra. Félagsþjónustan veitir íbúum margvíslega þjónustu s.s. aðstoð við aldraða, aðstoð við ungt fólk, félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð skv. sérstökum reglum, heimilishjálp, heimsendan mat, stuðningsþjónustu og húsaleigubætur.

Svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra  

Svæðisskrifstofurnar starfa á vegum félagsmálaráðuneytis og þjóna fólki með fötlun, bæði börnum og fullorðnum, og fjölskyldum og aðstandenum þeirra. Þangað er m.a. hægt að sækja um styrki vegna námskostnaðar eða verkfæra- og tækjakaupa.  

Landssamtök lífeyrissjóða   

Hjá Landssamtökum lífeyrissjóða er hægt að nálgast upplýsingar um lífeyrismál og lífeyrissjóði. Á heimsíðu þeirra http://www.ll.is er hægt að nálgast bæklinginn Lífeyrissjóðurinn þinn - upplýsingarit um lífeyrismál.

 



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 



 

Útlit síðu: