Hreyfing

Svona æfir þú fæturna

Hreyfing er líkamanum nauðsynleg. Hún skapar vellíðan og kemur í veg fyrir stirðnun. Mikilvægt er að hreyfa alla hluta líkamans.

Til að þér líði vel líkamlega þarftu að eiga góða skó. Til að sálinni líði vel þarf góða skó. Gerir þú svo dálitla fótaleikfimi þá verða fæturnir þér ævinlega þakklátir. Hér er æfingaráætlun fyrir fætur sem var útbúin á sjúkrahúsinu í Skövde, Svíþjóð.

Æfing 1


 

Æfing 1

Lyftu þér upp á tær, haltu stöðunni í nokkrar sekúndur og svo niður aftur.


 

 

 

 

Æfing 2


Æfing 2

Stattu með hæla í gólfinu, hreyfðu öklana eins og þú sért að stíga saumavél, upp og niður, haltu þeim í ystu stöðu í nokkrar sekúndur.

 

 

Æfing 3

 

Æfing 3

Sestu niður og hafðu fæturna á gólfinu. Dragðu fæturna undir þig, en bara það langt að hælarnir nemi við gólfið. Lyftu hælunum upp eins hátt og þú getur, láttu tærnar nema við gólfið allan tímann.

Æfing 4

 

Æfing 4

Settu viskastykki eða annan taubút á gólfið. Gríptu viskastykkið með því að kreppa tærnar utan um það og slepptu svo með því að rétta úr þeim. Ef þú getur, skaltu lyfta efninu með tánum frá gólfinu og sleppa því síðan aftur.

Æfing 5

 

Æfing 5

Rúllaðu bolta (t.d. tennisbolta) með fætinum frá tánni að hælnum, fram og til baka.

Æfing 6

 

Æfing 6

Spenntu tærnar í sundur.

Æfing 7

 

Æfing 7

Krepptu tærnar.

Æfing 8

 

Æfing 8

Hafðu hæla í gólfi og gríptu bolta (t.d. tennisbolta) með iljunum og lyftu honum upp.

Æfing 9

 

Æfing 9

Teygðu á kálfunum.

 

 

 

 

 

Þýðing

Svala Björgvinsdóttir, verkefnastjóri fræðslu, þýddi þessa grein úr blaði Sænska Gigtarfélagsins, Reumatikertidningen, nr. 6, 2002.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Útlit síðu: